Svar óskast við 23 spurningum 5. desember 2009 06:00 Átta guðfræðingar spyrja í grein í Fréttablaðinu 3. desember: Hvert viljum við fara? Hafi þeir þökk fyrir það. Í kjölfarið fylgja 23 spurningar sem staðfesta hve ráðvillan og ráðleysið er átakanlegt ekki greinarhöfundanna heldur okkar allra. Allar skipta þessar spurningar okkur miklu máli. Um þessar mundir er einblínt á efnahagslega þætti hrunsins, sem von er. En það var ekki aðeins tiltekin efnahagsskipan sem hrundi haustið 2008 heldur sjálfsmynd okkar í öllum skilningi. Heimóttaháttur og umkomuleysi virðast nú hafa tekið við belgingi og sjálfbirgingshætti fyrir hrun. Menn gleymdu, viljandi eða óviljandi, boðorðunum tíu og fornum dygðum. Sumir bera meiri ábyrgð en aðrir. Sumir lugu, aðrir stálu. Við horfðum hins vegar alltof mörg skilnings- og athafnalaus á. Biedermann leynist víða. En aftur að spurningum guðfræðinganna. Hvernig á að svara þeim og hver á að svara þeim? Óhjákvæmilegt er að kalla á sviðið þann sem hefur stóru hlutverki að gegna: íslensku þjóðkirkjuna. Hún virðist standa á hliðarlínunni og dálítið eins og hún sé ekki alveg viss um hlutverk sitt. Hún ber ekki ábyrgð á því hvernig fyrir okkur er komið. En þjóðkirkjan má vita að hún hefur hlutverki að gegna. Hennar er ekki bara að spyrja spurninga. Hennar er líka að benda á leiðir að verðugum markmiðum og gera okkur kleift að feta þessar leiðir. Hennar ábyrgð felst í að grípa til aðgerða sem leiða okkur áfram og upp! Þjóðkirkjan hefur vel efni á því að tala og miklu fremur efni á að leiða góð verk. Í kirkjum landsins er unnið mikið andlegt uppbyggingarstarf sem fer hljótt, kannski of hljótt. Sálgæsla og aðstoð við nauðstadda fer eðlis málsins ekki hátt. Fjölbreytt æskulýðs- og fjölskyldustarf kirkjunnar er þjóðinni mikilvægt, ekki síst á þessum tímum. Ef fleiri hefðu hlustað á siða- og réttlætisboðskap hennar væri kannski ekki eins illa komið fyrir okkur. Það er hárrétt hjá greinarhöfundum að siðræn bylting þarf að eiga sér stað víða. En einhver þarf að leiða hana, setja henni markmið og vinna henni áætlun. Enginn hefur sterkara umboð til þess og enginn er færari eða bærari til þess en íslenska þjóðkirkjan. Ég óska eftir nýrri grein frá guðfræðingunum átta með uppástungu um markmiðssetta áætlun um siðræna umbreytingu á Íslandi. Jafnframt óska ég þess sem leikmaður að þjóðkirkjan leggi fram aðgerðaáætlun um nýja siðbót. Skapa þarf þjóðinni nýjan sáttmála við sjálfa sig. Höfundur er í þjóðkirkjunni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Átta guðfræðingar spyrja í grein í Fréttablaðinu 3. desember: Hvert viljum við fara? Hafi þeir þökk fyrir það. Í kjölfarið fylgja 23 spurningar sem staðfesta hve ráðvillan og ráðleysið er átakanlegt ekki greinarhöfundanna heldur okkar allra. Allar skipta þessar spurningar okkur miklu máli. Um þessar mundir er einblínt á efnahagslega þætti hrunsins, sem von er. En það var ekki aðeins tiltekin efnahagsskipan sem hrundi haustið 2008 heldur sjálfsmynd okkar í öllum skilningi. Heimóttaháttur og umkomuleysi virðast nú hafa tekið við belgingi og sjálfbirgingshætti fyrir hrun. Menn gleymdu, viljandi eða óviljandi, boðorðunum tíu og fornum dygðum. Sumir bera meiri ábyrgð en aðrir. Sumir lugu, aðrir stálu. Við horfðum hins vegar alltof mörg skilnings- og athafnalaus á. Biedermann leynist víða. En aftur að spurningum guðfræðinganna. Hvernig á að svara þeim og hver á að svara þeim? Óhjákvæmilegt er að kalla á sviðið þann sem hefur stóru hlutverki að gegna: íslensku þjóðkirkjuna. Hún virðist standa á hliðarlínunni og dálítið eins og hún sé ekki alveg viss um hlutverk sitt. Hún ber ekki ábyrgð á því hvernig fyrir okkur er komið. En þjóðkirkjan má vita að hún hefur hlutverki að gegna. Hennar er ekki bara að spyrja spurninga. Hennar er líka að benda á leiðir að verðugum markmiðum og gera okkur kleift að feta þessar leiðir. Hennar ábyrgð felst í að grípa til aðgerða sem leiða okkur áfram og upp! Þjóðkirkjan hefur vel efni á því að tala og miklu fremur efni á að leiða góð verk. Í kirkjum landsins er unnið mikið andlegt uppbyggingarstarf sem fer hljótt, kannski of hljótt. Sálgæsla og aðstoð við nauðstadda fer eðlis málsins ekki hátt. Fjölbreytt æskulýðs- og fjölskyldustarf kirkjunnar er þjóðinni mikilvægt, ekki síst á þessum tímum. Ef fleiri hefðu hlustað á siða- og réttlætisboðskap hennar væri kannski ekki eins illa komið fyrir okkur. Það er hárrétt hjá greinarhöfundum að siðræn bylting þarf að eiga sér stað víða. En einhver þarf að leiða hana, setja henni markmið og vinna henni áætlun. Enginn hefur sterkara umboð til þess og enginn er færari eða bærari til þess en íslenska þjóðkirkjan. Ég óska eftir nýrri grein frá guðfræðingunum átta með uppástungu um markmiðssetta áætlun um siðræna umbreytingu á Íslandi. Jafnframt óska ég þess sem leikmaður að þjóðkirkjan leggi fram aðgerðaáætlun um nýja siðbót. Skapa þarf þjóðinni nýjan sáttmála við sjálfa sig. Höfundur er í þjóðkirkjunni.
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar