Viðskipti innlent

Hrein eign lífeyriskerfisins rýrnaði um 11% í fyrra

Hrein eign lífeyriskerfisins rýrnaði um 11% að raungildi á frá upphafi síðasta árs til nóvemberloka. Eignastaðan batnaði þó heldur í nóvembermánuði, þótt stærstur hluti nafnaukningar eigna hafi verið vegna þess hve gengi krónu var lágt í nóvemberlok.

Fjallað er um málið í Morgnkorni greiningar Glitnis. Þar segir að í tölum um efnahag lífeyrissjóða sem Seðlabankinn birti á föstudag kemur fram að hrein eign til greiðslu lífeyris var 1.713 milljarðar kr. í nóvemberlok, og hafði þá aukist að nafnvirði um 77 miljarða kr. í mánuðinum. Til samanburðar voru eignir lífeyrissjóðanna til greiðslu lífeyris 1.697 milljarðar kr. í upphafi árs 2008.

Frá hruni bankakerfisins í októberbyrjun hafa lífeyrissjóðirnir kosið að ávaxta stærstan hluta nýrra iðgjalda í innlánum, enda óvissa mikil á markaði, fjárfestingarkostir fremur fáir og ávöxtun á innlánsreikningum há. Sjóður og bankainnistæður lífeyrissjóðanna námu þannig tæpum 158 miljörðum kr. í nóvemberlok, en til samanburðar var þessi tala rúmir 32 milljarðar kr. í byrjun síðasta árs.

Segja má að verðtryggð íbúðalán hafi reynst lífeyrissjóðunum hvað bestur fjárfestingarkostur það sem af er ári. Samanlögð eign þeirra í útgefnum skuldabréfum Íbúðalánasjóðs og forvera hans annars vegar, og verðtryggðum sjóðfélagalánum hins vegar, nam 478 milljörðum kr. í lok nóvembermánaðar síðastliðins. Það samsvarar 28% af hreinni eign sjóðanna á þessum tíma. Hafði þessi eign aukist um tæp 29% að nafnvirði, en 10% að raunvirði frá sama tíma 2007.

Enn ríkir nokkur óvissa um útkomu lífeyrissjóðanna eftir áfallaárið 2008. Þeir hafa yfirleitt reiknað tilteknar afskriftir inn í eignasafn sitt vegna skuldabréfa innlendra banka og fyrirtækja, en ekki liggur enn fyrir hversu hátt hlutfall þessara eigna fáist borgað út á endanum. Þó er ljóst að hrein eign sjóðanna hefur rýrnað að raungildi á árinu, líkt og raunin er með allan þorra slíkra sjóða í helstu iðnríkjum.

Ef litið er lengra er þó raunávöxtun sjóðanna með ágætum, og eftir sem áður er íslenska lífeyrissjóðakerfið eitt hið öflugasta á byggðu bóli.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×