Hrein eign lífeyriskerfisins rýrnaði um 11% í fyrra 12. janúar 2009 11:30
Hrein eign lífeyriskerfisins rýrnaði um 11% að raungildi á frá upphafi síðasta árs til nóvemberloka. Eignastaðan batnaði þó heldur í nóvembermánuði, þótt stærstur hluti nafnaukningar eigna hafi verið vegna þess hve gengi krónu var lágt í nóvemberlok. Fjallað er um málið í Morgnkorni greiningar Glitnis. Þar segir að í tölum um efnahag lífeyrissjóða sem Seðlabankinn birti á föstudag kemur fram að hrein eign til greiðslu lífeyris var 1.713 milljarðar kr. í nóvemberlok, og hafði þá aukist að nafnvirði um 77 miljarða kr. í mánuðinum. Til samanburðar voru eignir lífeyrissjóðanna til greiðslu lífeyris 1.697 milljarðar kr. í upphafi árs 2008. Frá hruni bankakerfisins í októberbyrjun hafa lífeyrissjóðirnir kosið að ávaxta stærstan hluta nýrra iðgjalda í innlánum, enda óvissa mikil á markaði, fjárfestingarkostir fremur fáir og ávöxtun á innlánsreikningum há. Sjóður og bankainnistæður lífeyrissjóðanna námu þannig tæpum 158 miljörðum kr. í nóvemberlok, en til samanburðar var þessi tala rúmir 32 milljarðar kr. í byrjun síðasta árs. Segja má að verðtryggð íbúðalán hafi reynst lífeyrissjóðunum hvað bestur fjárfestingarkostur það sem af er ári. Samanlögð eign þeirra í útgefnum skuldabréfum Íbúðalánasjóðs og forvera hans annars vegar, og verðtryggðum sjóðfélagalánum hins vegar, nam 478 milljörðum kr. í lok nóvembermánaðar síðastliðins. Það samsvarar 28% af hreinni eign sjóðanna á þessum tíma. Hafði þessi eign aukist um tæp 29% að nafnvirði, en 10% að raunvirði frá sama tíma 2007. Enn ríkir nokkur óvissa um útkomu lífeyrissjóðanna eftir áfallaárið 2008. Þeir hafa yfirleitt reiknað tilteknar afskriftir inn í eignasafn sitt vegna skuldabréfa innlendra banka og fyrirtækja, en ekki liggur enn fyrir hversu hátt hlutfall þessara eigna fáist borgað út á endanum. Þó er ljóst að hrein eign sjóðanna hefur rýrnað að raungildi á árinu, líkt og raunin er með allan þorra slíkra sjóða í helstu iðnríkjum. Ef litið er lengra er þó raunávöxtun sjóðanna með ágætum, og eftir sem áður er íslenska lífeyrissjóðakerfið eitt hið öflugasta á byggðu bóli.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira