Seldi íslendingum Nígeríubréf 17. september 2009 20:30 Sveinn býr nú á Grundarfirði.
Sveinn Friðfinnsson, sem grunaður er um milljarða svik í Svíþjóð, var kærður til lögreglunnar hér á landi fyrir fjársvik, um miðjan desember árið 2005. Lögreglan rannsakaði málið í næstum eitt og hálft ár, en felldi það svo niður, í mars árið 2007. Fréttastofa hefur undir höndum skjal, undirritað af fulltrúa í lögfræðideild lögreglunnar, um þetta. Menn sem töldu sig hlunnfarna í gjaldeyrisviðskiptum við Svein, kærðu hann til lögreglu. Þeir vilja ekki koma fram. Lögreglumaður sem ekki vill koma fram undir nafni sagði fréttastofu að það væri sem Sveinn hefði selt Nígeríubréf. Hann undraðist að menn hefðu átt í þessum viðskiptum; enn fremur að dæmi væru um að menn hefðu látið Svein hafa fé til ávöxtunar eftir að hann var kærður til lögreglu. Svo virtist sem græðgin hefði borið þá ofurliði. Mennirnir sem sem áttu í viðskiptum við Svein upplýsa að lögmaður, sem Sveinn réði í sína þjónustu, hefði gert þeim tilboð um bætur, fyrir hluta tjónsins sem þeir hefðu orðið fyrir í viðskiptum við hann. Gerður hefði verið samningur um að fá hluta hins tapaða fjár til baka. Það átti að gerast í fjórum greiðslum. Tvær fyrstu greiðslurnar bárust með skilum, við undirritun í fyrrasumar og svo mánuði síðar. Síðan hafa mennirnir ekki séð krónu. Fréttastofa hefur samning eins mannanna undir höndum. Höfuðstóll bótanna er samkvæmt samningum, tvær milljónir króna. Einn mannanna sendi málið til innheimtu, en hafði ekki erindi sem erfiði, eftir því sem næst verður komist.. Sænska dagblaðið Dagens Industri upplýsti um svikamyllu, sem Sveinn á að hafa staðið fyrir, í félagi við annan mann, sænskan. Sænska fjármálaeftirlitið hefur varað við svindlinu. Þarlendur saksóknari rannsakar málið. Hann verst allra frétta. Svíarnir sem áttu viðskipti við Svein, munu hafa vitað að starfsemi hans væri á „gráu svæði" en hafi hugsað sér að koma peningum framhjá skattinum. Þeir tjá sig um málið í skjóli nafnleysis á sænskri spjallsíðu, en nefna þó Svein. Sveinn mun dveljast hér á landi, en hann var meðal annars á Grundarfirði í sumar, en hefur undanfarin ár dvalist mikið erlendis; meðal annars í Danmörku, Svíþjóð og á Kýpur. Fréttastofa hefur reynt að ná af honum tali, en ekki haft erindi sem erfiði.
Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira