Viðskipti innlent

Skilanefnd Glitnis að semja um kvótaveðin

Skilanefnd Glitnis er að ljúka við semja um lánamál ýmissa íslenskra útflutningsfyrirtækja við Seðlabanka Lúxemborgar og vonast eftir hagstæðri niðurstöðu.

Það leysir meðal annars mál þeirra sjávarútvegsfyrirtækja, sem fréttastofan sagði frá í gærkvöldi. Var greint frá því að Glitnir hefði fært veð í kvóta nokkurra stærstu útgerða landsins í hendur erlendra banka síðastliðið sumar og þannig sé talið að kvótaveð að verðmæti á þriðja tug milljarða króna hafi komist í hendur útlendinga.

Heildarlánapakkinn sem skilanefnd Glitnis er að semja um vegna sjávarútvegsfyrirtækjanna og annarra fyrirtækja, hér á landi og erlendis, nemur tugum milljarða króna.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×