Enski boltinn

Casillas hefur ekki heyrt frá Man. Utd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Iker Casillas.
Iker Casillas. Nordic Photos/Getty Images

Spænski landsliðsmarkvörðurinn Iker Casillas segir ekkert vera hæft í þeim sögum að hann sé á förum frá Real Madrid til Manchester United.

„Þessar sögur eiga sér enga stoð í raunveruleikanum. Ég hef ekkert heyrt frá Man. Utd né öðru félagi. Ég hef ekki fengið nein tilboð og það hefur ekkert félag hringt í mig einu sinni. Þetta eru bara sögusagnir sem eru svo algengar á þessum tíma," sagði Casillas í samtali við spænska fjölmiðla.

Casillas spilaði sinn fyrsta leik fyrir Real árið 1999 og er með samning við félagið til ársins 2017. Hann ætlar að heiðra þann samning.

„Ég hef aldrei hugsað um annað en að klára þennan samning. Allir vita að ég elska Madrid og verð hvítur þar til ég dey. Ég kom til þessa félags þegar ég var barn og Madrid er heimili mitt."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×