Spyr hvort Varnarmálastofnun hafi brotið NATO reglur Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 28. júlí 2009 23:45 Björn Bjarnason, fyrrum dómsmálaráðherra. Mynd/Anton Brink
Björn Bjarnason, fyrrum dómsmálaráðherra, veltir fyrir sér í dagbókarfærslu á heimasíðu sinni hvort Varnarmálastofnun hafi brotið gegn reglum NATO þegar hún birti opinberlega upplýsingar um ferðir rússneskra kafbáta á Drekasvæðinu. „Þess var ekki getið, hvernig stofnunin aflaði þessara upplýsinga. Ástæða er til að velta fyrir sér, hvort samræmist reglum NATO að birta þær opinberlega," segir Björn. Þá nefnir hann það sem hugsanlega skýringu að stofnunin hafi verið að réttlæta tilvist sína gagnvart Árna Þór Sigurðssyni, formanni utanríkismálanefndar og þingmanni Vinstri grænna, og flokkssystkinum hans. Þá gagnrýnir hann Ellisif Tinnu Víðisdóttur, forstjóra Varnarmálastofnunar, fyrir að fullyrða í útvarpsviðtali að starfsemi stofnunarinnar sé skilyrði fyrir aðild Íslands að NATO. „Hvergi segir í samningum Íslands við NATO, að hér skuli starfa varnarmálastofnun," segir Björn. Hann segir ekki síður undarleg ummæli Árna Þórs um að loftrýmisgæsla undir merkjum NATO snerti ekki hagsmuni Íslands, en bætir við að Varnarmálastofnun sé ekki forsenda eftirlitsins. Björn klykkir út með því að segja brotalamir hafa verið á starfsemi varnarmálastofnunar frá upphafi og bætir við að það sé tímaskekkja að utanríkismálaráðuneytið taki þátt í rekstri stofnunarinnar. Færslu Björns má í heild sinni lesa hér.
Mest lesið Kvíðir vetrinum framundan Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Innlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira