Viðskipti innlent

Áfram rætt um sameiningu sparisjóða

Viðræður um sameiningu Sparisjóðsins í Keflavík, Byrs og SPRON sem hafa staðið yfir frá því í byrjun desember halda áfram.

Hafa samningsaðilar kannað hvort grundvöllur er fyrir sameiningu sparisjóðanna. Viðræðurnar hafa gengið vel og er nú beðið þess að sparisjóðirnir ljúki ársuppgjörum sínum svo halda megi þeim áfram.

Í tilkynningu um málið segir að þær tímaáætlanir sem gerðar voru í upphafi viðræðnanna munu ekki nást m.a. vegna aðstæðna í íslensku efnahagslífi en gert var ráð fyrir að niðurstöður þeirra lægju fyrir á fyrstu vikum þessa árs. Engar nýjar tímasetningar liggja fyrir um framhaldið, en stefnt er að því niðurstaða liggi fyrir eins fljótt og hægt er.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×