Innlent

Írsk setter-tík valin sú besta

Best Cararua Alana heitir hún, tíkin sem valin var besti hundur sýningar Hundaræktar­félags Íslands sem stóð yfir alla helgina. Fréttablaðið/Daníel
Best Cararua Alana heitir hún, tíkin sem valin var besti hundur sýningar Hundaræktar­félags Íslands sem stóð yfir alla helgina. Fréttablaðið/Daníel

Cararua Alana, tæplega fimm ára gömul írsk setter-tík, var valin besti hundur sumarsýningar Hundaræktar­félags Íslands í gær. „Í ár vorum við með fimm erlenda dómara og þeim bar saman um að hún væri verðug þessa titils. Ég er auðvitað voðalega stolt af henni,“ segir Jóna Viðarsdóttir, eigandi tíkar­innar og jafnframt for­maður HRFÍ.

Sýning HRFÍ stóð yfir alla helgina. Vel þótti takast til og sýningin var vel sótt. Á henni komu fram hvorki meira né minna en 645 hundar af 82 hundakynjum. - hhs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×