Evrópusinnar munu styðja Þorgerði Höskuldur Kári Schram skrifar 19. júlí 2009 18:27
Evrópusinnar innan Sjálfstæðisflokks munu þjappa sér að baki varaformanns flokksins eftir að hann sat hjá í atkvæðagreiðslu um Evrópusambandsaðild. Þetta er mat aðjúnkts í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Enn er óljóst hvaða afleiðingar málið kann að hafa fyrir einstaka flokka og þingmenn. Alþingi samþykkti þingsályktunartillögur ríkisstjórnarinnar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu með 33 atkvæðum gegn 28. Allir flokkar klofnuðu í afstöðu sinni til málsins nema Samfylkingin. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokks, sat hjá í atkvæðagreiðslunni og hefur hún verið harðlega gagnrýnd fyrir það. Silja Bára Ómarsdóttir, stjórnmálafræðingur telur að þetta muni hins vegar ekki veikja stöðu hennar innan flokksins. „Að einhverju leyti mun sá armur flokksins sem vill fara inn í evrópusambandið sennilega þjappa sér að baki hennar eftir þetta," segir Silja. Vinstri grænir voru andvígir aðild þegar boðað var til kosninga í vor. Átta þingmenn flokksins greiddu hins vegar atkvæði með tilögunni, þar á meðal formaður flokksins. „Það birtust nú tölur í gær að það hefðu ekki verið nema tuttugu úrsagnir úr flokknum á föstudeginum, þannig að viðbrögðin hafa ekki verið hatrammari en þetta. Flokkurinn á eftir að funda. Það er flokksráðsfundur í lok sumars, lok ágúst og þar verður þetta eflaust umdeilt. Þar mun koma í ljós hvort flokkurinn gliðnar eitthvað, hvort það verður einhver klofningur út úr honum í kjölfarið." Þráinn Bertelsson, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, gagnrýndi félaga sína harðlega fyrir kjósa gegn tillögunni. Aðspurð hvort hún sæi fyrir sér að flokkurinn myndi hreinlega leysast upp segir SIlja: „Þau gerðu það alveg ljóst að það sé verið að kjósa þau inn sem einstaklinga. Að þessu leyti. Þó þau fari inn undir merkjum þessrar hreyfingar. Þannig að þau velja að starfa sem einstaklingar þvert á flokka eða það er möguleiki." Þá klofnaði flokksforysta framsóknarmanna í málinu. „Þetta auðvitað sýnir ágreining innan forystu flokksins sem hlýtur að vera erfitt að leysa úr. Sigmundur er splunkuknýr í þessu hlutverki og þarf að finna sér leið til að skapa sér stöðu. Þannig að maður getur ekki séð að þetta sé beint til að styrkja hann. Sérstaklega ekki í ljósi þess að Framsóknarflokkurinn lýsti yfir vilja til að fara inn."
Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Innlent Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Fleiri fréttir Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Sjá meira