Viðskipti innlent

Nýsir selur í Hraðbraut

Ólafur Haukur Johnson.
Ólafur Haukur Johnson.
Nýsir og aðrir eigendur menntaskólans Hraðbrautar hafa selt hjónunum Borghildi Pétursdóttur og Ólafi Hauki Johnson skólastjóra hans hlut sinn í skólanum.

Eftir þessa breytingu sitja í stjórn þau Pétur Björn Pétursson hagfræðingur, formaður, Höskuldur Ásgeirsson viðskiptafræðingur, varaformaður, Helga Guðrún Johnson blaðamaður og Bjarni Jónsson ljósmyndari. Varamaður er Benedikt Sveinsson forstjóri.

Menntaskólinn Hraðbraut býður framhaldskólanám til stúdentsprófs á skemmri tíma en aðrir framhaldsskólar eða aðeins tveimur árum. Sérstaða skólans felst í lotukerfi og að aðeins eru kenndar þrjár námsgreinar í einu á hverjum tíma auk þess sem nemendur vinna mestan hluta „heimavinnunnar" í skólanum. Þetta fyrirkomulag leiðir til aukinnar skilvirkni í skólastarfinu og undirbýr nemendur vel undir nám á háskólastigi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×