Ekki er eftir neinu að bíða 14. janúar 2009 07:30 Nú bíðum við Samfylkingarfólk. Bíðum eftir landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Bíðum þess að vita hvort breyting verði á stefnu Sjálfstæðisflokksins í Evrópumálum, hvort samþykkt verði að fara í aðildarviðræður. En gagnast það málstað Evrópusinna? Ég tel að það gæti gert mikinn skaða ef farið verður í aðildarviðræður undir forystu þeirrar ríkistjórnar sem nú situr. Þessi ríkistjórn nýtur ekki trausts. Samstarfsflokkur okkar ber allt of mikla ábyrgð á þeim hörmungum sem nú ríða yfir til að trúverðugt sé að þeir leiði eða taki þátt í endurreisninni. Það að þessi ríkistjórn leiði aðildarviðræður getur í sjálfu sér skaðað markmið okkar um aðild. Umboð ríkisstjórnarinnar er útrunnið þótt kjörtímabilið sé ekki liðið. Það mikla framfaraspor sem ég tel að innganga í ESB gæti orðið má ekki verða feilspor, stigið í skugga umboðslausrar ríkisstjórnar. Ég óttast að það gæti orðið til þess að koma í veg fyrir samþykki í þjóðaratkvæðagreiðslu. Því tel ég tilgangslaust fyrir okkur að bíða. Við eigum að slíta þessu samstarfi og treysta því að hvorki Vinstri grænir né „ný Framsókn" skelli sér í sæng með Sjálfstæðisflokknum og að boðað verði til kosninga. Þjóðin vill kosningar og á að fá þær, við eigum ekki að standa í vegi fyrir því. Samfylkingin hefur engu að kvíða í kosningum. Ekki nema við gerum það að okkar stefnu að bíða eftir Sjálfstæðisflokknum. Leyfum þeim að nota eitt af okkar grundvallarstefnumálum til að draga okkur á asnaeyrunum í ríkistjórn sem situr í óþökk þjóðarinnar. Það eru brýn mál sem brenna á þjóðinni sem kjósa þarf um, óháð ESB-aðild. Það að halda þessu stjórnarsamstarfi til streitu til að fara í aðildarviðræður getur orðið til þess að aðild verði hafnað og við göngum að endingu til kosninga sem undirlægjur og taparar. Það gerir hvorki okkur né okkar málstað gott. Markmiðið er ekki aðildarviðræður heldur aðild að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Við þurfum þjóðina með okkur í þann leiðangur, hún mun ekki fylgja þessari ríkistjórn. Höfundur er borgarfulltrúi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Þú þarft líklega ekki að taka símann og hleðslutækið úr svefnherberginu Ásdís Bergþórsdóttir Skoðun Klerkastjórnin í Íran að riða til falls: Hvers vegna þegja fjölmiðlar? Davíð Bergmann Skoðun Heimsendaspár sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Pólitíska stríðið sem nærist á þér Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Vesalingarnir í borginni Daði Freyr Ólafsson Skoðun Að kveðja 2025 og mæta 2026 með mildi og forvitni Ingrid Kuhlman Skoðun Þögnin í áramótaávarpi forsætisráðherra Daði Freyr Ólafsson Skoðun Guðbjörg verður áfram gul Reynir Traustason Skoðun Hverjum voru ráðherrann og RÚV að refsa? Júlíus Valsson Skoðun Týndu börnin Jón Ingi Hákonarson Skoðun Skoðun Skoðun Týndu börnin Jón Ingi Hákonarson skrifar Skoðun Heimsendaspár sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Pólitíska stríðið sem nærist á þér Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Vesalingarnir í borginni Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Klerkastjórnin í Íran að riða til falls: Hvers vegna þegja fjölmiðlar? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Að kveðja 2025 og mæta 2026 með mildi og forvitni Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þú þarft líklega ekki að taka símann og hleðslutækið úr svefnherberginu Ásdís Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Á krossgötum Alexandra Briem skrifar Skoðun Þögnin í áramótaávarpi forsætisráðherra Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Borg á heimsmælikvarða! Skúli Helgason skrifar Skoðun Veiðiráðgjöf byggð á ágiskunum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Loftgæði mæld í Breiðholti - í fyrsta sinn í 12 ár Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað tengir typpi og gullregn? Kristján Friðbertsson skrifar Skoðun Er áramótaheitið árið 2026 betri skjávenjur? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar eiga krakkarnir að vera á nýju ári? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hinsegin Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Leiðtogi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Sögulegt ár í borginni Skúli Helgason skrifar Skoðun Fimmtán algengar rangfærslur um loftslagsbreytingar – og hvað er rétt Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Öryggið á nefinu um áramótin Eyrún Jónsdóttir,Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Þegar höggbylgjan skellur á Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Hefur þú rétt fyrir þér? Svarið er já Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Markmiðin sem skipta máli Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Netverslun með áfengi og velferð barna okkar Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Við gerum það sem við sögðumst ætla að gera Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Stingum af Einar Guðnason skrifar Skoðun Guðbjörg verður áfram gul Reynir Traustason skrifar Skoðun Kvennaár og hvað svo? Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Hinir „hræðilegu“ popúlistaflokkar Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Hafnarfjörður í mikilli sókn Orri Björnsson skrifar Sjá meira
Nú bíðum við Samfylkingarfólk. Bíðum eftir landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Bíðum þess að vita hvort breyting verði á stefnu Sjálfstæðisflokksins í Evrópumálum, hvort samþykkt verði að fara í aðildarviðræður. En gagnast það málstað Evrópusinna? Ég tel að það gæti gert mikinn skaða ef farið verður í aðildarviðræður undir forystu þeirrar ríkistjórnar sem nú situr. Þessi ríkistjórn nýtur ekki trausts. Samstarfsflokkur okkar ber allt of mikla ábyrgð á þeim hörmungum sem nú ríða yfir til að trúverðugt sé að þeir leiði eða taki þátt í endurreisninni. Það að þessi ríkistjórn leiði aðildarviðræður getur í sjálfu sér skaðað markmið okkar um aðild. Umboð ríkisstjórnarinnar er útrunnið þótt kjörtímabilið sé ekki liðið. Það mikla framfaraspor sem ég tel að innganga í ESB gæti orðið má ekki verða feilspor, stigið í skugga umboðslausrar ríkisstjórnar. Ég óttast að það gæti orðið til þess að koma í veg fyrir samþykki í þjóðaratkvæðagreiðslu. Því tel ég tilgangslaust fyrir okkur að bíða. Við eigum að slíta þessu samstarfi og treysta því að hvorki Vinstri grænir né „ný Framsókn" skelli sér í sæng með Sjálfstæðisflokknum og að boðað verði til kosninga. Þjóðin vill kosningar og á að fá þær, við eigum ekki að standa í vegi fyrir því. Samfylkingin hefur engu að kvíða í kosningum. Ekki nema við gerum það að okkar stefnu að bíða eftir Sjálfstæðisflokknum. Leyfum þeim að nota eitt af okkar grundvallarstefnumálum til að draga okkur á asnaeyrunum í ríkistjórn sem situr í óþökk þjóðarinnar. Það eru brýn mál sem brenna á þjóðinni sem kjósa þarf um, óháð ESB-aðild. Það að halda þessu stjórnarsamstarfi til streitu til að fara í aðildarviðræður getur orðið til þess að aðild verði hafnað og við göngum að endingu til kosninga sem undirlægjur og taparar. Það gerir hvorki okkur né okkar málstað gott. Markmiðið er ekki aðildarviðræður heldur aðild að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Við þurfum þjóðina með okkur í þann leiðangur, hún mun ekki fylgja þessari ríkistjórn. Höfundur er borgarfulltrúi.
Þú þarft líklega ekki að taka símann og hleðslutækið úr svefnherberginu Ásdís Bergþórsdóttir Skoðun
Skoðun Klerkastjórnin í Íran að riða til falls: Hvers vegna þegja fjölmiðlar? Davíð Bergmann skrifar
Skoðun Þú þarft líklega ekki að taka símann og hleðslutækið úr svefnherberginu Ásdís Bergþórsdóttir skrifar
Skoðun Fimmtán algengar rangfærslur um loftslagsbreytingar – og hvað er rétt Eyþór Eðvarðsson skrifar
Þú þarft líklega ekki að taka símann og hleðslutækið úr svefnherberginu Ásdís Bergþórsdóttir Skoðun