Gunnar Nelson mætir meistara á morgun 28. mars 2009 22:00
Það reynir svo sannarlega á hinn tvítuga Gunnar Nelson þegar hann keppir á PAN JIU-JITSU CHAMPIONSHIP 2009 í Kaliforníu á morgun, sunnudag, því Gunnar dróst gegn engum öðrum en Clark Graice í fyrstu umferð. Clark Gracie er heimsþekktur bardagaíþróttamaður og úr innsta hring Gracie fjölskyldunnar sem þróaði brasilískt jiu jitsu (BJJ). Faðir Clark er Carley Gracie sem er 8. gráðu svartbelti í BJJ og m.a. brasilískur meistari 1969-1972. Afi Clark er enginn annar en Carlos Gracie sem er einn upphafsmanna íþróttarinnar. Sjálfur ólst Clark Gracie upp í BJJ gallanum og er margverðlaunaður og meðal verðlauna undanfarin ár má m.a. nefna gullverðlaun á ameríska meistaramótinu 2005 og 2006 og silfurverðlaun 2007. Jafnframt hlaut hann annað sæti 2007 á heimsmeistaramótinu í No-Gi (án galla). Það verður að segjast eins og er að fyrirfram eru möguleikar hins tvítuga Íslendings ekki taldir miklir á að komast áfram Clark Gracie en á móti kemur allra augu munu beinast að glímunni og góð frammistaða Gunnars mun svo sannarlega vekja athygli innan heims bardagaíþróttanna en Pan Jiu Jitsu meistaramótið er ásamt heimsmeistaramótinu það stærsta í heiminum í dag. Clark Gracie rekur tvo bardagaíþróttaskóla í San Diego og faðir hann rekur einnig slíkan skóla í San Francisco. Annar Íslendingur, Vignir Már Sævarsson, keppti í millivigt í byrjendaflokki (hvítt belti) öldunga 36-40 ára í gær og stóð sig vel, en tapaði í fyrstu umferð og féll úr keppni. Til gamans má geta að Clark Gracie er náfrændi Renzo Gracie sem er aðalþjálfari Gunnars í New York en Gunnar hefur dvalist þar við æfingar undanfarnar vikur og mánuði. Sjá nánar um PAN JIU-JITSU CHAMPIONSHIP á vefsetri Alþjóða BJJ sambandsins: www.ibjjf.org.
Mest lesið Þóra grætur í koddann ef Þorsteinn verður áfram með liðið Fótbolti Segir dóttur sína hafa gert mistök með því að velja íslenska landsliðið Fótbolti Mátti ekki kaupa íbúð Babe Ruth Sport „Þetta snýst ekki bara um Sveindísi og Karólínu“ Fótbolti Hneig niður tvisvar á risamóti í golfi Golf Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Sjáðu þáttinn um N1 mótið: Sprungnar vindsængur, lukkuljón og Ronaldo hárgreiðsla Fótbolti Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Viðurkenndi sök og má ekki keppa í CrossFit í fjögur ár Sport Dagskráin í dag: Golf og aftur golf Sport Fleiri fréttir Giorgi Dikhaminjia aftur til Íslands Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Lárus Orri byrjaður að bæta við sig Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Crystal Palace fær ekki að spila í Evrópudeildinni Alcaraz í úrslit Wimbledon þriðja árið í röð Tók fjóra daga þegar hún var tíu ára en getur nú unnið fimmta árið í röð Ragnhildur fyrst Íslendinga til að vinna LET Access mót Forest íhugar lögsókn gegn Tottenham Krabbameinslyf felldi fótboltamann á lyfjaprófi Þorsteinn Gauti semur við Sandefjord Fyrst Íslendinga til að skora og leggja upp í sama leik á EM Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka EM í dag: Nóg komið af leiðindum, kveðjustund og Copacabana „Þetta snýst ekki bara um Sveindísi og Karólínu“ Sjáðu þáttinn um N1 mótið: Sprungnar vindsængur, lukkuljón og Ronaldo hárgreiðsla Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Ísak Snær lánaður til Lyngby Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Arsenal og Liverpool að slá heimsmetið Þóra grætur í koddann ef Þorsteinn verður áfram með liðið Viðurkenndi sök og má ekki keppa í CrossFit í fjögur ár Segir dóttur sína hafa gert mistök með því að velja íslenska landsliðið Hneig niður tvisvar á risamóti í golfi Wenger á allt annarri skoðun en Klopp United leitar að yfirmanni leikmannakaupa Mátti ekki kaupa íbúð Babe Ruth Dagskráin í dag: Golf og aftur golf Skýrsla Arons: Stórum spurningum þarf að svara Sjá meira