Vilja kaupa Haga 13. nóvember 2009 12:14
Rúmlega eitthundrað og fimmtíu manns hafa skráð sig fyrir hlut í tilboði sem hópur fjárfesta hyggst gera í Haga. Hópurinn vill að fyrirtækið verði að almenningshlutafélagi og standi vörð um sanngjarna samkeppni í smávöruverslun. Hópurinn sem gengur undir nafninu Þjóðarhagur, birti heilsíðu auglýsingu í Morgunblaðinu í dag undir yfirskriftinni viltu vera með. Ekki er vitað hverjir standa á bak við þetta en í auglýsingunni segir að þetta sé hópur fjárfesta sem vilji gera Nýja Kaupþingi tilboð í Haga þegar hluturinn fari í almenna sölu. Eignarhaldsfélagið 1998 sem á Haga, sem rekur m.a. Hagkaup og Bónus, skuldar Kaupþingi 48 milljarða króna. Endurskipulagning á eignarhaldi Haga hefur staðið yfir undanfarið. Í samkomulagi bankans við 1998 hefur falist að Kaupþing eignist 40% í Högum og Jón Ásgeir Jóhannesson og viðskiptafélagar hans 60% gegn því að leggja fram sjö milljarða króna. Til þess hafa þeir nokkrar vikur. Þjóðarhagur vill gefa starfsfólki Haga og landsmönnum tækifæri til að eignast hlut í fyrirtækinu. Í auglýsingunni kemur fram að allir sem hafi áhuga geti tekið þátt og þar með tryggt að fyrirtækið fari í hendur almennings. Markmiðið sé að gera fyrirtækið að almenningshlutafélagi og standa vörð um sanngjarna samkeppni. Lágmarkshlutur er á 5000 krónur. Rétt fyrir hádegi höfðu rúmlega 150 manns skráð sig fyrir hlut inni á vefsíðunni thjodarhagur.is.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira