Norðmenn eiga enn möguleika á sæti í undanúrslitum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. desember 2009 12:45 Noregur tapaði fyrir Suður-Kóreu um helgina. Mynd/AP
Noregur tapaði sínum fyrsta leik á HM í handbolta kvenna í Kína um helgina en á þó enn möguleika á sæti í undanúrslitunum. Þórir Hergeirsson er landsliðsþjálfari Noregs sem tapaði fyrir Suður-Kóreu á laugardaginn, 28-27, eftir að hafa verið með eins marks forystu í hálfleik, 14-13. Norðmenn réttu þó úr kútnum með öruggum sigri á Kína í gær, 34-19. Noregur leikur í síðari milliriðlinum en tvö efstu liðin úr hvorum milliriðli komast áfram í undanúrslitin. Spánverjar eru efstir í riðlinum með sjö stig og eru öruggir með sæti í undanúrslitum. Norðmenn þurfa nú að vinna Spánverja á morgun til að tryggja sér sömuleiðis sæti í undanúrslitunum eða þá treysta á að Rúmenía vinni Suður-Kóreu. Rúmenar eru í fjórða sæti riðilsins með fjögur stig og eiga ekki lengur möguleika á sæti í undanúrslitunum. Florentina Stanciu, lék í 30 mínútur er Rúmenía vann Kína á laugardaginn, 40-19, og varði sex skot í leiknum. Rúmenía tapaði svo í gær fyrir Spánverjum naumlega, 26-25, og varði Stanciu annað tveggja vítaskota sem hún fékk að spreyta sig við í leiknum. Spánn er í efsta sæti riðilsins með sjö stig, Noregur er með sex og Suður-Kórea fimm fyrir lokaumferð milliriðlakeppninnar sem fer fram á morgun. Mikil spenna er í fyrri milliriðlinum en þar eru þrjú lið efst og jöfn með sex stig fyrir lokaumferðina - Rússland, Frakkland og Danmörk. Danir og Rússar mætast innbyrðis í lokaumferðinni á morgun en Frakkland mætir Austurríki sem er með tvö stig í riðlinum, rétt eins og Angóla og Þýskaland.
Handbolti Mest lesið Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti Tíu ár frá kraftaverkinu í Nice Fótbolti 91 árs og mættur á sitt 18. heimsmeistaramót Fótbolti Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Spyr hvort VAR sé orðið happadrætti á þessu HM Fótbolti Haraldur Franklín nálgast Opna breska Golf Franska lögreglan vill að Demantamótinu í París verði aflýst Sport Þjóðhátíð þegar Grænhöfðaeyjar komst áfram Sport Fleiri fréttir Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Sjá meira