Stefni klárlega á að vera með á EM Ómar Þorgeirsson skrifar 19. nóvember 2009 06:30 Ásgeir Örn Hallgrímsson er mikilvægur hlekkur í liði GOG en liðið er í toppbaráttu dönsku úrvalsdeildarinnar.
Landsliðsmaðurinn Ásgeir Örn Hallgrímsson hefur leikið vel með liði sínu GOG Svendborg eftir að hafa snúið aftur úr erfiðum hnémeiðslum sem héldu honum utan vallar í tæpt hálft ár. Ásgeir Örn hóf endurkomu sína sem kunnugt er með stæl í byrjun nóvember þegar hann tryggði GOG 24-23 sigur gegn Bjerringbro-Silkeborg með sigurmarki á lokasekúndunni. GOG tapaði reyndar næsta leik gegn fallbaráttuliðinu Århus GF en fékk svo heldur betur uppreisn æru í fyrrakvöld þegar liðið vann ellefu marka stórsigur, 35-24, gegn toppliðinu KIF Kolding þar sem Ásgeir Örn skoraði þrjú mörk. „Þetta var helvíti þétt hjá okkur og virkilega vel gert. Við bara völtuðum yfir þá eins og sagt er. Þetta er vissulega sterk yfirlýsing sem við erum að senda með þessum sigri en við töpuðum reyndar fyrir liðinu í næstneðsta sæti í umferðinni þar á undan. Þannig að það má kannski segja frekar að við séum að senda frá okkur svona blendin skilaboð. Við verðum samt að reyna að byggja á þessum góða sigri í síðasta leik. Það er það sem þetta snýst um," segir Ásgeir Örn. Ásgeir Örn kveðst eðlilega ekki vera kominn í sitt gamla form enn eftir langvarandi meiðsli en er bjartsýnn á að þau séu nú að baki. „Mér finnst ég náttúrlega ekki vera alveg sami maður og fyrir meiðslin og það er ekkert óeðlilegt miðað við hvað ég var lengi frá. Maður er ekki jafn sterkur og ekki jafn snöggur og áður og á enn smá í land með þá þætti en það kemur allt á endanum. Ég fór í aðgerð á hnénu og finn alveg fyrir því en það er ekkert sem ég hef áhyggjur af eða er eitthvað óeðlilegt. Maður þarf bara að passa sig og hugsa vel um þetta svo þetta taki sig ekki upp aftur," segir Ásgeir Örn. Hann er harðákveðinn í því að vera klár í slaginn með íslenska landsliðinu fyrir EM í Austurríki í janúar. „Ef ég verð heill áfram þá stefni ég klárlega á að vera með landsliðinu á EM en það er auðvitað hlutverk Guðmundar [Guðmundssonar, landsliðsþjálfara og þjálfara GOG] að velja liðið. Ég hef svo sem ágætis glugga til að sýna mig fyrir honum," segir Ásgeir Örn á léttum nótum.
Handbolti Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Svakaleg endurkoma Joshua í fyrsta bardaga hans eftir bílslysið Sport Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Enski boltinn Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fótbolti Haaland kyndir undir Haaland-æði á samfélagsmiðlum Fótbolti Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira