Íslenski svikahrappurinn í Svíþjóð var með handrukkara á hælunum 16. september 2009 18:45
Íslenskur maður á fimmtugsaldri er talinn hafa staðið fyrir umfangsmiklum pýramídasvindli í Svíþjóð. Sænska fjármálaeftirlitið telur að svindlið nemi milljörðum íslenskra króna. Svikaslóð mannsins teygir sig mörg ár aftur í tímann og til margra landa. Fjallað er um málið á vef sænska blaðsins Dagens Industry. Þar segir frá því að Íslendingur á fimmtusaldri, sem heitir Sveinn Friðrinnsson, hafi í félagi við aðra, staðið fyrir umfangsmiklu svindli, sem margir svíar hafi orðið fyrir barðinu á. Fólki var lofað gríðarlegri ávöxtun fyrir gjaldeyrisviðskipti í gegnum félag sem heitir Investa Select Offshore, en þetta var meðal annars gert í gegnum vefsíðuna Zierra.net. Enda þótt svíarnir hafi getað fylgst með gengi fjárfestingarinnar hækka, þá hefur enginn séð krónu og kvarta menn nú á spjallsíðum. Sænska fjármálaeftirlitið hefur varað við starfseminni og heldur því fram að þetta sé svikamylla; pýradmídasvindl. Málið er enn fremur til rannsóknar hjá sænskum saksóknara. Lögreglan hér á landi kannast hins vegar ekkert við þessi mál. Fréttastofu hefur ekki tekist að ná tali af Sveini og óvíst er hvar hann er niðurkominn. Hann hefur tengst Kýpur, París, Danmörku og Grundarfirði, en hann á meðal annars matstofuna Krákuna. Sveinn mun hafa komið á Grundafjörð í sumar. Ferillinn virðist hins vegar langur. DV fjallaði um meint svik hans í Danmörku fyrir fjórum árum. Þangað virðist hann hafa farið, eftir að hafa átt í vafasömum viðskiptum við landa sína hér. Þeir töldu sig margir mjög hlunnfarna í þeim viðskiptum. Það gekk svo langt að handrukkarar voru sendir á eftir honum út, en hann slapp. Fyrir fáum misserum réði maðurinn tvo lögmenn í sína þjónustu til þess að reyna að gera upp við ýmsa þá sem höfuðu farið illa út úr viðskiptunum. Hann reyndi einnig að ráða sér almannatengslafulltrúa í því skyni að bæta ímynd sína gagnvart fólkinu. Hann mun hafa gengið frá einhverjum hluta krafnanna, sem í sumum tilvikum námu milljónum króna.
Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Fleiri fréttir „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Sjá meira