Sigurbjörn: Verður varla sætara Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. júlí 2009 21:32 Sigurbjörn Hreiðarsson, lengst til hægri, í leik með Val. Mynd/Stefán
Sigurbjörn Örn Hreiðarsson var hæstánægður með sigur sinna manna á KA í kvöld en hann skoraði sigurmark leiksins undir lok leiksins sem þurfti að framlengja. Valur hefur þar með tryggt sér sæti í fjórðungsúrslitum VISA-bikarkeppni karla en staðan að loknum venjulegum leiktíma var 2-2. „Þetta verður varla sætara," sagði Sigurbjörn um sigurinn og sigurmarkið sitt sem kom á 117. mínútu. „Þetta hefur verið erfitt hjá okkur að undanförnu og sigurinn því afar kærkominn. Við þurftum þó aldeilis að hafa fyrir hlutunum í dag enda KA-menn mjög góðir." „En við ætluðum okkur ekkert annað en sigur í þessum leik. Það var því svekkjandi að fá þetta ódýra jöfnunarmark á okkur og djöfullegt að hafa ekki náð að fylgja eftir seinna markinu okkar. Það var óþarfi að missa leikinn í framlengingu og óhætt að segja að ég sé alveg búinn á því núna." Atli Eðvaldsson tók við þjálfun Vals í gær og stýrði því liðinu á einni æfingu. „Mér fannst hann koma mjög vel inn í öll mál hjá okkur og náði að setja mark sitt á liðið - enda mikill fagmaður." Hann neitar því ekki að Valur á mestan möguleika á því að vinna titil í sumar í bikarkeppninni. „Það er vissulega langsótt að reyna að ná FH í deildinni. Nú eru möguleikar okkar í bikarnum einn á móti átta og eru það talsvert betri líkur en í deildinni," sagði hann í gamansömum tón.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira