Innlent

Kostnaður við sólarhringsvistun fanga á við meðal hótelherbergi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Það er ekki ókeypis fyrir samfélagið að vista fanga. Mynd/ GVA.
Það er ekki ókeypis fyrir samfélagið að vista fanga. Mynd/ GVA.

Kostnaðurinn við að vista fanga hvern sólarhring er á við meðal hótelherbergi. Líkt og Vísir greindi frá í morgun kostar sólarhringsvistun í fangelsi um 24 þúsund krónur, samkvæmt upplýsingum frá Fangelsismálastofnun. „Ef þú tekur það sem lagt er til fangelsismála á ári og deilir því á fjölda fanga og þá er allt innifalið húsið, öryggisgæslan, matur, sálfræðiþjónusta og fleira þá er það í kringum 24 þúsund krónur sólarhringurinn," sagði Páll Winkel fangelsismálastjóri í samtali við Vísi.



Til samanburðar má nefna að dýrasta eins manns herbergi á Eddu hóteli, svokallað Eddu plús, kostar 12.400 krónur. Eins manns herbergi með morgunmat á Hótel Sögu kostar 32.300 miðað við septembermánuð. Þá kostar eins manns herbergi á vinsælasta Foss-hótelinu um 23 þúsund krónur og er þá miðað við herbergi með baði og morgunverði.



Líkt og fram kom í máli Páls reiknast inn í kostnað vegna fangelsisvistunar atriði sem koma hótelrekstri ekkert við, eins og sálfræðiþjónusta. Þá er fullt fæði inni í kostnaði vegna fangelsisvistunar.


Tengdar fréttir

Vistun Papeyjarfanga gæti kostað samfélagið 350 milljónir

Það gæti kostað alls 352 milljónir að vista mennina sem voru dæmdir í Papeyjarmálinu í gær í fangelsi næstu árin. Samkvæmt upplýsingum frá Páli Winkel fangelsismálastjóra kostar vistun fanga 24 þúsund krónur á sólarhring.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×