Þýskir fjölmiðlar greina frá kæru Framara Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 28. nóvember 2009 11:30 Viggó Sigurðsson, fyrrum þjálfari Fram. Mynd/Valli
Þýskir fjölmiðlar hafa greint frá kæru handknattleiksdeildar Fram vegna leiks liðsins gegn slóvakíska liðinu Tatran Presov í EHF-bikarkeppninni. Fram féll úr leik í keppninni eftir að hafa tapað síðari leik liðanna með stórum mun, 38-17. Báðir leikirnir fóru fram í Slóvakíu en fyrri leiknum lauk með fjögurra marka sigri Tatran Presov, 27-23. Í síðari leiknum fengu þrír Framarar að líta rauða spjaldið og fékk Tatran Presov átta vítaköst í leiknum - Fram ekkert. Slóvenskir dómarar dæmdu leikinn. „Ég vissi strax að þarna væri eitthvað misjafnt á ferðinni," sagði Viggó Sigurðsson, þáverandi þjálfari Fram, í samtali við heimasíðu þýsku sjónvarpsstöðvarinnar ZDF. Viggó greindi frá því að hann hefði séð dómarana með bæði fulltrúa Tatran Presov og ungverskum fulltrúa Evrópska handknattleikssambandsins þar sem þeir sátu og drukku á hótelbarnum kvöldið fyrir leik. „Það var mikið magn af víni sem flæddi þar," lýsti Viggó. „Og síðar komu tvær laglegar ungar konur og settust hjá þeim. Þær fóru síðan á sama tíma og dómararnir." Fréttamaður ZDF spurði þá Viggó hvort þetta hafi verið vændiskonur. „Þannig leit þetta út," svaraði hann. Fulltrúar höfuðstöðva EHF í Vínarborg í Austurríki hafa þegar sagt að leikurinn yrði rannsakaður en að myndbandsupptökur frá leiknum væru mjög lélegar. Fram kemur í frétt ZDF um málið að dómaraparið frá Slóveníu, Darko Repensek og Janko Pozeznik, liggi þegar undir grun um að hafa þegið mútur vegna leiks Kiel og Ciudad Real í úrslitum Meistaradeildar Evrópu árið 2008.
Handbolti Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Enski boltinn Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fótbolti Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira