Kiel kærir Jesper Nielsen fyrir meiðyrði Henry Birgir Gunnarsson skrifar 23. apríl 2009 16:15 Nordic Photos / Bongarts
Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel, staðfesti við Vísi í dag að félag hans, Kiel, hefði kært danska skartgripajöfurinn Jesper Nielsen, stjórnarmann hjá Rhein-Neckar Löwen, fyrir meiðyrði. Nielsen hefur farið mikinn í þýskum fjölmiðlum síðustu vikur og ásakað Kiel um ýmislegt. Meðal annars um að múta dómurum hér áður fyrr og nú síðast fyrir að múta dómurum á þessari leiktíð. „Mér skilst að það sé búið að kæra hann. Það sem hann hefur verið að bera á borð finnst mér ekkert sérstaklega heiðarlegt," sagði Alfreð. „Hann er að spila ákveðna taktík með það að markmiði að við missum styrktaraðila. Það er mjög augljóst. Öll umræða um þessi mál hefur meira og minna verið í einhverjum sorpritum. Fjölmiðlar eru orðnir margir hverjir þannig í dag að þeir birta allt til að selja blöð. Hann fann morgunpóstinn í Hamburg til þess að birta sínar fréttir en það blað er ekkert sérstaklega vant að sinni virðingu," bætti Alfreð við og ljóst að Daninn yfirlýsingaglaði er ekki ofarlega á vinsældalista Alfreðs. Nielsen reyndi í fyrra að ná völdum í Kiel og vilja margir meina að hann sé að svara fyrir sig þar sem tilboði hans var hafnað. „Hann bauð rúmlega helmingi meiri pening en okkar aðalstyrktaraðili í dag, Provinzial, er að borga. Kiel hafnaði honum og framlengdi við Provinzial," sagði Alfreð sem er ekki jafn mikið fyrir sviðsljósið og Jesper. „Hann fór í kjölfarið yfir til Löwen og aðallega til þess að vera í blöðunum sýnist mér. Það er einhver athyglissýki í gangi þarna," sagði Alfreð Gíslason. Ítarlegt viðtal verður við Alfreð í Fréttablaðinu á morgun og þar er komið víða við.
Mest lesið Biðjast afsökunar eftir að keppandi kúkaði á sig Sport Strákarnir á Saga Class en stelpurnar aftar í vélinni Sport KA - Þór | Barist um Akureyri Handbolti Markvörður KR fór ítrekað fram: „Alveg stjörnubilað að horfa á þetta“ Íslenski boltinn „Þá mun ég reka mig sjálfur“ Fótbolti Ný stjarna fæðist í Heiðmörk um helgina Sport „Í raun og veru ætti ég ekki að þola hann“ Fótbolti „Ef þetta hefði verið ég þá hefði ég hætt keppni“ Sport Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Körfubolti Auknar líkur á að Ísland endi í neðstu deild Fótbolti Fleiri fréttir Haukar á toppinn og jafntefli á Selfossi Valur bætti vörnina úr síðasta leik Elín Rósa og Díana Dögg unnu stórsigur KA - Þór | Barist um Akureyri Orri Freyr markahæstur gegn Íslendingaliðinu Ófært frá Eyjum og leiknum frestað Íslendingaliðið vann bikarinn með tvo ólöglega Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Sjá meira