Innlent

Darling rangtúlkaði orð Árna segir bresk þingnefnd

„Útskrift af samtali fjármálaráðherrans við íslenska fjármálaráðherrann staðfestir ekki að íslenska ríkisstjórnin hafi haldið því fram að hún myndi ekki virða skuldbindingar sínar," segir í skýrslu nefndar breska þingsins sem rannsakar meðal annars fall íslensku bankanna og áhrif þess á breskt efnahagslíf.

Skýrslan var gerð opinber klukkan ellefu í gærkvöldi. Hún er sú fyrsta af nokkrum sem munu fjalla um fall íslensku bankanna í Bretlandi.

Hér er vitnað til samtals sem Árna Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, átti við starfs­bróður sinn Alistair Darling snemma dags 7. október síðastliðinn; daginn eftir að neyðarlög voru sett og bankarnir hrundu.

Nefndin kemst að þeirri niður­stöðu að beiting hryðjuverkalaganna sé mjög gagnrýniverð aðgerð. Einnig að í raun sé engin löggjöf til sem geti tekið á viðlíka vanda og kom upp í október.

„Við hvetjum fjármálaráðu­neytið til að íhuga hversu viðeigandi beiting laganna væri við áþekkar aðstæður í framtíðinni," segir í skýrslunni. Kemur fram að önnur löggjöf, sem ekki er eins harkaleg, væri vænlegri. Eindregið er hvatt til að slík löggjöf verði sett hið fyrsta. Þá segir nefndin augljóst að beiting hryðjuverkalaganna hafi haft mikil áhrif á tilraunir íslenskra stjórnvalda til að verja íslenska bankakerfið falli.

Um atburðarásina í október segir að aðgerðir Alistair Darling til að vernda hagsmuni breskra innistæðueigenda hafi haft mikil áhrif á getu Kaupþings til að halda velli. Hins vegar finnur nefndin þess engin merki að líkur séu til að Kaupþing hefði getað haldið áfram starfsemi; sem hefur verið grundvallarágreiningur á milli breskra og íslenskra stjórnvalda frá upphafi. Ummæli Darlings gerðu bresk stjórnvöld að virkum þátttakanda á markaði, sem er óheppilegt að mati nefndarmanna.

Ekkert er minnst á þung orð Gordons Brown, forsætisráðherra Breta, í garð Íslands í stærstu fjölmiðlum landsins á þessum tíma sem ollu deilu ríkjanna frekar en nokkuð annað, sem er nokkuð athyglisvert í ljósi gagnrýni á Darling og bresk stjórnvöld almennt.

Nefndarmenn lýsa furðu sinni á því að látlaus umfjöllun fjölmiðla um íslenska banka fyrir bankahrunið hafi ekki orðið til þess að ráðgjafar fjármálafyrirtækja gerðu skjólstæðingum sínum grein fyrir aukinni áhættu í viðskiptum við þá. - shá





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×