Skyldusigur á Belgum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. júní 2009 19:24 Úr fyrri leik Íslands og Belgíu í undankeppni EM 2010.
Ísland vann átta marka sigur á Belgíu ytra í undankeppni EM 2010 sem fer fram í Austurríki á næsta ári, 33-25. Ísland var án margra lykilleikmanna sem eru frá vegna meiðsla og þá hefur Ólafur Stefánsson enn ekki gefið kost á sér í landsliðið á ný. Óhætt er að segja að íslenska liðið hafi verið langt frá sínu besta í leiknum en staðan í hálfleik var 15-14, Íslandi í vil. Fyrri leik liðanna í Laugardalshöllinni lauk með nítján marka sigri Íslands, 40-21. Ísland skoraði aðeins eitt mark fyrstu sjö mínútur leiksins en náði sér fljótlega á strik og náði 5-2 forystu. En Belgar komu sér aftur inn í leikinn þrátt fyrir að vera manni færri og var það mjög einkennandi fyrir gang leiksins fyrstu 40 mínúturnar. Alexander Petersson var hvíldur undir lok fyrri hálfleiks og þá náðu Belgar enn og aftur að koma sér inn í leikinn og minnka muninn í eitt mark. Þeir náðu svo að jafna metin í upphafi síðari hálfleiksins í stöðunni 16-16. En þá sagði Alexander stopp. Hann skoraði fjögur af næstu sjö mörkum Íslands sem breytti stöðunni í 23-17 og gerði þar með út um leikinn. Auk þess var hann duglegur að gefa stoðsendingar á félaga sína og stela boltum í vörninni. Hann var í raun allt í öllu í liði Íslands. Ísland náði mest tíu marka forystu þegar að tíu mínútur voru eftir en í stað þess að auka muninn enn frekar gáfu þeir íslensku eftir og Belgar minnkuðu muninn í átta mörk. Belgía - Ísland 25 - 33 Mörk Íslands (skot): Guðjón Valur Sigurðsson 10/4 (13/5), Alexander Petersson 9 (11), Róbert Gunnarsson 4 (4), Vignir Svavarsson 4 (4), Rúnar Kárason 3 (4), Ragnar Óskarsson 3 (6), Sigurbergur Sveinsson (1), Andri Stefan (1), Aron Pálmarsson (4).Varin skot: Björgvin Gústavsson 8 (25, 32%), Hreiðar Guðmundsson 3 (11, 27%).Hraðaupphlaup: 11 (Guðjón Valur 4, Alexander 4, Vignir 3).Fiskuð víti: 5 (Guðjón Valur 2, Vignir 1, Róbert 1, Ragnar 1).Utan vallar: 8 mínútur.
Handbolti Mest lesið Biðjast afsökunar eftir að keppandi kúkaði á sig Sport Strákarnir á Saga Class en stelpurnar aftar í vélinni Sport KA - Þór | Barist um Akureyri Handbolti Markvörður KR fór ítrekað fram: „Alveg stjörnubilað að horfa á þetta“ Íslenski boltinn „Þá mun ég reka mig sjálfur“ Fótbolti „Í raun og veru ætti ég ekki að þola hann“ Fótbolti Auknar líkur á að Ísland endi í neðstu deild Fótbolti Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Körfubolti Mbappé og Vinicius vildu ekki sýna Ceuta stuðning Fótbolti Arnar kynnti nýjasta hópinn og mætti í spjall Fótbolti Fleiri fréttir Valur bætti vörnina úr síðasta leik Elín Rósa og Díana Dögg unnu stórsigur KA - Þór | Barist um Akureyri Orri Freyr markahæstur gegn Íslendingaliðinu Ófært frá Eyjum og leiknum frestað Íslendingaliðið vann bikarinn með tvo ólöglega Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands Sjá meira