Persónuverndarsjónarmið komi ekki í veg fyrir nafnlausar ábendingar 8. ágúst 2009 18:30
Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, segir að persónuverndarsjónarmið eigi ekki að koma í veg fyrir að opinberar stofnanir geti tekið við nafnlausum ábendingum. Ýmsar opinberar stofnanir hafa tekið upp á því að bjóða fólki að senda sér ábendinga í skjóli nafnleyndar. Þetta eru til að mynda Vinnumálastofnun og Tryggingastofnun ríkisins. Báðar stofnanir eru með form á vefsíðum sínum, þar sem fólk getur sent stofnunum ábendingar um bótasvik, en án þess að láta nafns síns getið. Fram hefur komið í fréttum Stöðvar tvö að dæmi séu um tilhæfulausar ábendingar um bótasvik. Opinberar stofnanir hafi rannsakað fólk, sem ekkert hefur til saka unnið, á grundvelli slíkra ábendinga. Persónuvernd segir í nýlegu bréfi til opinberrar stofnunar, sem langaði til að bjóða upp á nafnlausar ábendingar á vefsíðu sinni, að eðlilegt sé að svonalagað heyri til algerra undantekninga. Vafasamt sé að taka upp almenna framkvæmt um nafnleysi nema það styðjist við sérstaka lagaheimild. Vitnað er til einkalífsréttar, gagnsæis, sanngirni og vandaðrar stjórnsýslu. Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, segir að persónuvernd hafi ekki gert athugasemdir við framgöngu stofnana sem heyri undir sig og rökstuðningi hennar hafi ekki verið beint til félagsmálaráðuneytisins. Bréf Persónuverndar er raunar opinbert og felur í sér almenn sjónarmið stofnunarinnar.
Mest lesið Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Tveir hinna látnu lögreglumenn Erlent Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Innlent Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Innlent Fleiri fréttir Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Sjá meira