Rannsókn hætt á mútumáli Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. mars 2009 12:15 Uwe Schwenker ræðir við fjölmiðlamenn á mánudagskvöldið. Nordic Photos / Bongarts
Forráðamenn þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta hafa ákveðið að hætta að rannsaka þær ásakanir um að Kiel hafi mútað dómurum í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu árið 2007. Kiel mætti þá Flensburg í síðari úrslitaleik liðanna eftir að þeim fyrri lauk með jafntefli. Kiel vann síðari leikinn með tveggja marka mun. Ásakanirnar birtust fyrst í Flensburger Tagesblatt á mánudagsmorgun. Upphafið að því að málið kom fram virðist vera það að Noka Serdarusic, sem var þjálfari Kiel á þessum tíma, hafi greint forráðamönnum Rhein-Neckar Löwen frá mútunum. Til stóð að Serdarusic tæki við þjálfun Rhein-Neckar Löwen en fyrir skömmu var tilkynnt að samningi hans við félagið hefði verið rift. Ástæðan var sögð vera sú að Serdarusic hefði gengist undir aðgerð á hné og treysti sér ekki í starfið af þeim sökum. Síðan að fréttin birtist hafa þó aldrei nein sönnunargögn komið fram í málinu. Í raun er því um sögusagnir að ræða. Eina afleiðingin af þessu máli virðist hins vegar vera að Serdarusic tekur ekki við þjálfun Rhein-Neckar Löwen. Jesper Nielsen, einn forráðamanna Rhein-Neckar Löwen, hefur staðfest í samtali við fjölmiðla að Serdarusic hefði ekki verið stætt á að starfa hjá félaginu miðað við þær upplýsingar sem það hefði. Í gær greindi svo Reiner Witte, forseti þýsku úrvalsdeildarinnar, frá því að málið yrði tekið af dagskrá þeirra. „Við skoðuðum málið sem sögusagnir. Það liggja engin sönnunargögn fyrir í því," sagði Witte. Uwe Schwenker, framkvæmdarstjóri Kiel, var ánægður með þetta. „Ég hef alltaf sagt að það er ekkert hæft í þessum ásökunum. En handboltinn hefur hlotið mikinn skaða af þeim fyrirsögnum sem hefur verið slegið upp á síðustu dögum." Kjartan Steinbach var formaður dómaranefndar Alþjóða handknattleikssambandsins frá 1996 til 2004 og sagði í samtali við Vísi í gær að nánast ómögulegt væri að sanna mútúmál sem þessi - þó efaðist hann um að stórlið eins og Kiel færi að beita slíkum brögðum.Alfreð Gíslason er nú þjálfari Kiel.
Handbolti Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Fleiri fréttir Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Sjá meira