Enski boltinn

Heskey ekki með gegn Man. Utd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Heskey verður frá í tvær vikur.
Heskey verður frá í tvær vikur. Nordic Photos/Getty Images

Aston Villa verður án framherjans sterka, Emile Heskey, á sunnudag þegar liðið sækir topplið Man. Utd heim á Old Trafford.

Heskey snéri til félagsins frá landsliðinu meiddur og ljóst að hann nær ekki leiknum um helgina. Fastlega er búist við því að hann verði frá næstu tvær vikurnar.

Heskey meiddist í leiknum gegn Slóvakíu um síðustu helgi. Hann var þá nýbúinn að skora sitt fyrsta landsliðsmark í sex ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×