Viðskipti innlent

Eimskip semur við eigendur skuldabréfaflokks um frestun

Eimskipafélag Íslands hefur samið við eigendur 90% að virði skuldabréfa í einum af skuldabréfaflokkum sínum sem er 1,6 milljarður kr. að verðmæti.

Í tilkynningu frá Eimskip segir að samkomulag er um að skuldabréfaeigendur falli frá gjaldfellingarákvæðum sínum og Eimskip hefur nú heimild til að fresta gjalddaga þar til 30 dögum eftir sölu eigna í Norður Ameríku er lokið en þó eigi síðar en 30. júní.

Þá verði öllum vaxtagreiðslum frestað yfir sama tímabil og gjaldfallnir vextir bætast við höfuðstól. Áður hefur verið tilkynnt um samskonar samkomulag við mikinn meirihluta eigenda í tveimur öðrum skuldabréfaflokkum Eimskips

Eimskip vinnur jafnframt að samskonar samkomulagi við eigendur annarra skuldabréfaflokka útgefnum af félaginu og mun tilkynna um það innan skamms.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×