Ólafur gulltryggði Ciudad Real Evrópumeistaratitilinn í lokin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. maí 2009 03:00 Ólafur Stefánsson var frábær á úrslitastundu í dag. Mynd/Vilhelm
Ólafur Stefánsson vann Meistaradeildina í fjórða sinn á ferlinum þegar hann og félagar hans í Ciudad Real unnu sex marka sigur á Kiel, 33-27, í seinni úrslitaleiknum á Spáni í dag. Ólafur átti mjög góðan leik og var markahæstur hjá Ciudad með átta mörk. Kiel vann fyrri leikinn í Þýskalandi með fimm mörkum, 39-34, og kom því með fimm mörk í veganesti í seinni leikinn. Líkt og í fyrra sýndu Ólafur og félagar mikinn karakter og unnu frábæran sigur. Kiel var miklu sterkari í fyrri hálfleik og var lengi með þriggja stiga forskot en Ciudad Real náði að minnka muninn niður í eitt mark, 14-13, fyrir hálfleik. Ólafur Stefánsson skoraði síðasta mark hálfleiksins úr vítaskoti eftir að leiktímanum lauk. Kiel hóf seinni hálfleik af krafti og var fljótlega komið með fjögurra marka forskot eða níu marka forskot samtals. Þá small spænska liðið í mikið stuð og breytti stöðunni úr 16-20 í 27-24 á 15 mínútna kafla. Ciudad Real hélt áfram að auka forskotið og vonin glæddist með hverju marki. Titillinn sem var svo fjarlægur skömmu áður var allt í einu í sjónmáli. Lokakaflinn var síðan ótrúlegur, Ciudad Real vann lokamínúturnar 6-1 og tryggði sér sigurinn. Ólafur skoraði tvö af þessum sex mörkum á lokakaflanum þar á meðal lokamarkið sem gulltryggði Evrópumeistaratitilinn. Hann skoraði alls átta mörk úr tólf skotum og var markahæstur á vellinum. Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Kiel misstu hreinlega frá sér sigurinn í dag. Þeir voru í frábærri stöðu en síðan var eins og það væri slökkt á liðinu í vörn og sókn. Alfreð tók leikhlé í stöðunni 26-23 fyrir Ciudad en það náði ekki að kveikja í hans mönnum.
Mest lesið Biðjast afsökunar eftir að keppandi kúkaði á sig Sport Strákarnir á Saga Class en stelpurnar aftar í vélinni Sport KA - Þór | Barist um Akureyri Handbolti Markvörður KR fór ítrekað fram: „Alveg stjörnubilað að horfa á þetta“ Íslenski boltinn „Þá mun ég reka mig sjálfur“ Fótbolti „Í raun og veru ætti ég ekki að þola hann“ Fótbolti Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Körfubolti Auknar líkur á að Ísland endi í neðstu deild Fótbolti Mbappé og Vinicius vildu ekki sýna Ceuta stuðning Fótbolti Arnar kynnti nýjasta hópinn og mætti í spjall Fótbolti Fleiri fréttir Valur bætti vörnina úr síðasta leik Elín Rósa og Díana Dögg unnu stórsigur KA - Þór | Barist um Akureyri Orri Freyr markahæstur gegn Íslendingaliðinu Ófært frá Eyjum og leiknum frestað Íslendingaliðið vann bikarinn með tvo ólöglega Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands Sjá meira