Íslenski boltinn

Lokadagur félagsskipta er 31. júlí

Ómar Þorgeirsson skrifar
Ólafur Páll Snorrason hefur verið orðaður við mörg lið undanfarið.
Ólafur Páll Snorrason hefur verið orðaður við mörg lið undanfarið. Mynd/Vilhelm

Samkvæmt reglugerð KSÍ um félagsskipti, samninga og stöðu leikmanna og félaga eru félagsskipti innanlands ekki heimil frá og með 1. ágúst til og með 20. febrúar.

Lokadagur félagsskipta er því föstudagurinn 31. júlí og því verða allar tilkynningar um félagsskipti að hafa borist skrifstofu KSÍ fyrir miðnætti þann dag.

Það verður fróðlegt að sjá hvað gerist á lokadögum félagsskiptagluggans þar sem nokkur félög í efstu deild karla hafa þegar gefið það út að þau ætli að styrkja sig fyrir lokasprettinn í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×