Lögreglan á Suðurnesjum hefur opnað starfsmönnum við álversbygginguna í Helguvík leilð inn á vinnusvæðið, eftir að 20 manna hópur á vegum Saving Iceland hlekkjaði sig þar við hliðin og byggingakrana á svæðinu.
Lögreglan hefur klippt á hengilása og hlekki og hefur stjórn á málum á svæðinu, en laust fyrir klukkan níu hafði enginn verið handtekinn. Samtökin eru að mótmæla stóriðjuuppbyggingu og uuppbyggingu raforkuvera til að knýja hana.