Handbolti

Sturla og félagar unnu lið Hannesar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hannes Jón átti ágætan leik.
Hannes Jón átti ágætan leik.

Dusseldorf, lið Sturlu Ásgeirssonar, vann góðan heimasigur, 29-25, á Hannover Burgdorf, liði Hannesar Jóns Jónssonar, í þýska handboltanum í dag.

Sturla komst ekki á blað hjá Dusseldorf en Hannes Jón skoraði 4 mörk fyrir Burgdorf, þar af eitt úr víti.

Andrius Stelmokas, fyrrum leikmaður KA, komst ekki á blað hjá Burgdorf frekar en Robertas Pauzuolis, fyrrum leikmaður Hauka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×