FH lagði toppliðið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. janúar 2009 21:24 Rúnar Kárason, leikmaður Fram, fer hér framhjá Aroni Pálmarssyni. Mynd/Stefán
Heil umferð fór fram í N1-deild karla í handbolta í kvöld. FH vann sigur á toppliði Fram, 39-35. Staðan á toppi deildarinnar er jöfn og spennandi eftir úrslit kvöldsins en Haukar eru nú með sextán stig, rétt eins og topplið Fram, eftir 25-23 sigur á Val. Valur er svo í þriðja sæti með fimmtán stig og hefði því getað komið sér á topp deildarinnar með sigri á Haukum í kvöld. Þeir Aron Pálmarsson og Guðmundur Pedersen skoruðu níu mörk hvor fyrir FH í kvöld og Bjarni Fritzson skoraði sex mörk í sínum fyrsta leik fyrir FH. Rúnar Kárason var markahæstur hjá Fram með ellefu mörk en Guðjón Finnur Drengsson kom næstur með fimm. Staðan í hálfleik í leik Hauka og Vals var 14-9, Haukum í vil. Sigurbergur Sveinsson var markahæstur hjá heimamönnum með sjö mörk og Freyr Brynjarsson kom næstur með fjögur. Hjá Val skoraði Fannar Friðgeirsson flest mörk eða fimm talsins. Heimir Örn Árnason skoraði fjögur mörk fyrir Val. Þá gerðu Stjarnan og HK jafntefli, 28-28. Víkingur vann sinn fyrsta sigur í deildinni í kvöld er liðið lagði Akureyri, 27-25, norðan heiða. Víkingur byrjaði mjög vel í leiknum og hafði 14-7 forystu í hálfleik. Einar Örn Guðmundsson skoraði sjö mörk fyrir Víking og Sveinn Þorgeirsson fimm. Aðeins fjórir menn komust á blað í liði Akureyrar í kvöld. Jónatan Magnússon var langmarkahæstur og skoraði fimmtán mörk en það dugði sem fyrr segir ekki til. Akureyri er í fimmta sæti með tólf stig, HK í því sjötta með ellefu og Stjarnan í sjöunda sæti með sjö stig. Víkingur er enn í neðsta sæti en er nú með þrjú stig.
Olís-deild karla Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Körfubolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Körfubolti Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Körfubolti Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Körfubolti Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti Fleiri fréttir Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Sjá meira