Skoðun

Pistill: Öfug fyrning á kvóta útgerðarinnar

Friðrik Indriðason skrifar

Til er tiltölulega einföld lausn á þeim vanda sem stjórnvöld eru í hvað varðar fyrningarleiðina svokölluðu í sjávarútvegi. Það er einfaldlega að fara öfugt í hana. Í stað þess að sjávarúvegsfyrirtækjum sé gert skylt að afskrifa 5% af kvóta sínum á hverju ári verði þeim boðið upp á að bjóða í hver 5% af aukningu kvótans á næstu misserum eða árum.

Fjölmargir, utan Hafrannsóknarstofnunnar, telja að hægt sé að auka kvótann verulega og þá sérstaklega í þorski. Nauðsynlegt sé að grisja stofninn til að stækka hann. Benda þeir á reynslu af slíku við Færeyjar og núna sérstaklega í Barentshafi.

Í Barentshafi var talið að þorskstofninn væri í mikilli hættu fyrir nokkrum árum en sjómenn létu sér þær aðvaranir í léttu rúmu liggja og héldu áfram að „ofveiða" þorskinn. Niðurstaðan í ár kemur á óvart því mælingar þeirra vísindamanna sem töldu stofninn í útrýmingarhættu áður fyrr sýna nú að hrygningarstofninn er yfir milljón tonn og óhætt sé að veiða um 700.000 tonn.

Það er því örugglega hægt að gefa út 5-10% aukakvóta í þorski, og jafnvel fleiri tegundum. Þar yrði um að ræða 7.500 til 15.000 tonn í þorskinum einum. Þennan kvóta gætu stjórnvöld einfaldlega boðið upp sem leigukvóta á þessu fiskveiðaári og fengju hæstbjóðendur hann til sín.

Þetta fyrirkomulag myndi einnig leysa af hólmi annað vandamál sem er að enginn leigukvóti er til staðar á þeim markaði í dag. Það er hinsvegar viðurkennd staðreynd að slíkur leigukvóti verður að vera til staðar til að sjómenn hendi einfaldlega ekki meðafla sínum beint fyrir borð aftur.

Tekjurnar fyrir ríkissjóð gætu orðið umtalsverðar með þessu fyrirkomulagi. Hvert kíló af þorskkvóta til leigu á markaðinum í dag, þ.e. þegar hann fæst, selst á um 270 kr. kílóið samkvæmt heimasíðum kvótamarkaða. Andvirði 7.500 tonna leigukvóta fyrir ríkissjóð er því um 2 milljarðar kr. Ríkið gæti einnig ákveðið að bjóða kvótann út til langframa og er andvirðið þá orðið yfir 13 milljarðar kr.

Fari svo að hægt verði að auka kvótann enn meira væri slíkt bara hreinar tekjur í sjóði ríkisins. Og útgerðin myndi ekki þurfa að afskrifa neitt hjá sér. Það er frá stöðunni í dag. Sennilega mun útgerðin ekki taka í mál að fara þessa leið enda telur hún sig „eiga" fiskinn við landið og því óréttlátt að fái ekki sjálfkrafa sinn hlut af auknum kvóta ef stjórnvöld ákveða að bæta við hann frá því sem nú er.

Útgerðin verður hinsvegar að skilja að hún þarf að leggja sitt af mörkum í þeim erfiðleikum sem íslenska þjóðarbúið býr við. Og enn hefur þeim lögum ekki verið breytt sem segja að fiskimiðin við landið séu sameign þjóðarinnar.








Skoðun

Sjá meira


×