Myndastyttur í kreppu 13. janúar 2009 06:00 Nú er kreppa í þjóðfélaginu. Ég þarf að forgangsraða launum fyrir nauðsynjum, eins og mat, húsnæði, hita, rafmagni og læknisþjónustu. Vasapeningar og frístundaþátttaka eru skorin niður, bíóferðir, fatakaup og ferðalög eru slegin af. Fjölskyldan sammælist um að þreyja þorrann og taka slátur og borða hafragraut. Allir sameinast um að skera niður eins og hægt er. Þrátt fyrir það er fyrirséð að endar munu ekki ná saman. Kannski Jói litli gæti farið að bera út blaðið, Anna hætt í fótbolta og Einar í píanónáminu? Ég gæti aflað aukatekna með því að spá í spil og heimilisfaðirinn gæti selt jeppann sinn og fengið sér reiðhjól. Ég er afskaplega ánægð með niðurstöðuna, við gerðum öll okkar besta og ég trúi því að okkur muni takast að ráða fram úr hallanum. Á þessum tímapunkti er komið að því að ég láti gera minnismerki um virtan forföður minn. Það kostar mikla peninga en hann var bara svo frábær og virðingarverður. Eru ekki allir í fjölskyldunni tilbúnir til að spara meira til að ég geti látið gera minnismerki um þennan frábæra mann? Þetta er nákvæmlega það sem meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í borgarstjórn gerði þegar hann samþykkti fimm milljónir króna til myndastyttugerðar á sama tíma og allt borgarkerfið hafði þurft að skera niður í viðkvæmum málaflokkum. Pólitík á að snúast um forgangsröðun fjármagns í mikilvæg samfélagsleg verkefni. Þetta dæmi snýst reyndar ekki um pólitíska stefnu. Þegar harðnar á dalnum þá hættir allt venjulegt fólk einfaldlega að eyða peningum í það sem er hvorki mikilvægt, nauðsynlegt né áríðandi. Í kreppu forgangsraðar fólk peningunum í nauðsynjar. Það er heilbrigð skynsemi. Það er ekki hægt að finna meðvitund né skilning á aðstæðum fólks hjá meirihluta borgarstjórnar. Borgarfulltrúar meirihlutans eru fastir uppi í skýjunum og gera þar jafn mikið gagn og myndastyttur í kreppu. Höfundur er fyrrverandi varaborgarfulltrúi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Lítil skítseiði Hrafn Jónsson Skoðun Einkabíllinn er mest niðurgreiddi ferðamátinn Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Það er ekki spurning hvort – heldur hvenær Arnar Helgi Lárusson Skoðun Heilbrigðara Ísland Victor Guðmundsson Skoðun Grunnur að bjartri framtíð í Kópavogi Sigrún Bjarnadóttir Skoðun Hér er pláss fyrir þig Sandra Hlín Guðmundsdóttir Skoðun Sjálfstæðisflokkur ver ofurþéttingu við Birkimel Karólína Jónsdóttir Skoðun Reykjavík er ekki spilaborg Einar Mikael Sverrisson Skoðun Mjóeyrarhöfn og ný tækifæri fyrir Fjarðabyggð Elís Ármannsson Skoðun Strætó, bílar, rafhjól og gangandi fólk Unnar Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hefur gerst í leikskólamálum á kjörtímabilinu? Finnbjörn Hermannsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Félagsmiðstöðvar skipta máli Arndís Bára Pétursdóttir skrifar Skoðun Sköpum samfélag í Garðabæ þar sem við erum öll velkomin Harpa Grétarsdóttir skrifar Skoðun Lítil skítseiði Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Um hvað snýst þetta allt saman? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Styðjum betur við börn í Kópavogi Ester Halldórsdóttir skrifar Skoðun Af hverju Viðreisn 16. maí? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkur ver ofurþéttingu við Birkimel Karólína Jónsdóttir skrifar Skoðun Frelsi foreldra og farsæl byrjun – heimgreiðslur til 24 mánaða Birgitta Ragnarsdóttir,María Araceli,Berglind Ósk Guttormsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík er ekki spilaborg Einar Mikael Sverrisson skrifar Skoðun Við stýrum hraða í landi Blikastaða Hilmar Gunnarsson skrifar Skoðun Einkabíllinn er mest niðurgreiddi ferðamátinn Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Það er ekki spurning hvort – heldur hvenær Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Hér er pláss fyrir þig Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Mjóeyrarhöfn og ný tækifæri fyrir Fjarðabyggð Elís Ármannsson skrifar Skoðun Fjölbreytileiki er styrkur sveitarfélaga Irina S. Ogurtsova skrifar Skoðun Heilbrigðara Ísland Victor Guðmundsson skrifar Skoðun Hjólakynslóð framtíðar verður til Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Grunnur að bjartri framtíð í Kópavogi Sigrún Bjarnadóttir skrifar Skoðun Strætó, bílar, rafhjól og gangandi fólk Unnar Jónsson skrifar Skoðun Að kjósa af yfirvegun Morgan Bresko skrifar Skoðun Öll börn eiga rétt á öryggi Arna Magnea Danks skrifar Skoðun Umhverfið er okkar mál - Gaman að plokka í Garðabæ Guðfinna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Samfélag fyrir sum börn - framtíðarsýn sveitarfélaga fyrir fötluð börn Harpa Júlíusdóttir skrifar Skoðun Nauðsynlegar umbætur í menntamálum Inga Sæland skrifar Skoðun Urriðaholt svikið um almennilega sundlaug Laufey Gunnþórsdóttir skrifar Skoðun Hver bað um þessa illsku við eignalausa? Guðmundur Hrafn Arngrímsson,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum með skólasamfélaginu í Garðabæ! Harpa Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Fangelsi fyrir fjölskyldur - Ekki nota börn sem peð í pólitískri skák Alma Mjöll Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ferilsskrá í stað fagurgala Vigdís Gunnarsdóttir skrifar Sjá meira
Nú er kreppa í þjóðfélaginu. Ég þarf að forgangsraða launum fyrir nauðsynjum, eins og mat, húsnæði, hita, rafmagni og læknisþjónustu. Vasapeningar og frístundaþátttaka eru skorin niður, bíóferðir, fatakaup og ferðalög eru slegin af. Fjölskyldan sammælist um að þreyja þorrann og taka slátur og borða hafragraut. Allir sameinast um að skera niður eins og hægt er. Þrátt fyrir það er fyrirséð að endar munu ekki ná saman. Kannski Jói litli gæti farið að bera út blaðið, Anna hætt í fótbolta og Einar í píanónáminu? Ég gæti aflað aukatekna með því að spá í spil og heimilisfaðirinn gæti selt jeppann sinn og fengið sér reiðhjól. Ég er afskaplega ánægð með niðurstöðuna, við gerðum öll okkar besta og ég trúi því að okkur muni takast að ráða fram úr hallanum. Á þessum tímapunkti er komið að því að ég láti gera minnismerki um virtan forföður minn. Það kostar mikla peninga en hann var bara svo frábær og virðingarverður. Eru ekki allir í fjölskyldunni tilbúnir til að spara meira til að ég geti látið gera minnismerki um þennan frábæra mann? Þetta er nákvæmlega það sem meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í borgarstjórn gerði þegar hann samþykkti fimm milljónir króna til myndastyttugerðar á sama tíma og allt borgarkerfið hafði þurft að skera niður í viðkvæmum málaflokkum. Pólitík á að snúast um forgangsröðun fjármagns í mikilvæg samfélagsleg verkefni. Þetta dæmi snýst reyndar ekki um pólitíska stefnu. Þegar harðnar á dalnum þá hættir allt venjulegt fólk einfaldlega að eyða peningum í það sem er hvorki mikilvægt, nauðsynlegt né áríðandi. Í kreppu forgangsraðar fólk peningunum í nauðsynjar. Það er heilbrigð skynsemi. Það er ekki hægt að finna meðvitund né skilning á aðstæðum fólks hjá meirihluta borgarstjórnar. Borgarfulltrúar meirihlutans eru fastir uppi í skýjunum og gera þar jafn mikið gagn og myndastyttur í kreppu. Höfundur er fyrrverandi varaborgarfulltrúi.
Skoðun Hvað hefur gerst í leikskólamálum á kjörtímabilinu? Finnbjörn Hermannsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar
Skoðun Frelsi foreldra og farsæl byrjun – heimgreiðslur til 24 mánaða Birgitta Ragnarsdóttir,María Araceli,Berglind Ósk Guttormsdóttir skrifar
Skoðun Samfélag fyrir sum börn - framtíðarsýn sveitarfélaga fyrir fötluð börn Harpa Júlíusdóttir skrifar
Skoðun Hver bað um þessa illsku við eignalausa? Guðmundur Hrafn Arngrímsson,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Fangelsi fyrir fjölskyldur - Ekki nota börn sem peð í pólitískri skák Alma Mjöll Ólafsdóttir skrifar