Erlent

Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu framdi sjálfsmorð

Roh Moo-Hyun
Roh Moo-Hyun

Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu hefur framið sjálfsmorð með því að stökkva fram af klettum skammt frá heimili sínu. Í bréfi sem hann skildi eftir sig bað hann um að lík hans yrði brennt. Þar segir einnig að áframhaldandi líf hans yrði aðeins byrði fyrir aðra.

Roh Moo-Hyun lét af embætti forseta í febrúar á síðasta ári. Hann hefur síðan verið bendlaður við spillingar- og mútumál. Meðal annars hefur því verið haldið fram að eiginkona hans hafi þegið mútur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×