Stjórnarformaður Tals vísar gagnrýni á bug 5. janúar 2009 13:26 Þórdís J. Sigurðardóttir. ,,
Meirihluti stjórnar tók ákvörðun um það að segja Hermanni upp störfum og ráða nýjan forstjóra og sú ákvörðun stendur," segir Þórdís J. Sigurðardóttir, stjórnarformaður Tals. Hermann Jónasson sem nýverið var sagt upp störfum sem forstjóri Tals krefst þess að fá á ný að gegna forstjórastarfinu. „Þeir reyna að búa til nýtt "scenario" á hverjum degi til þess að reyna að láta okkur líta illa út,“ segir Þórdís um álitsgerð sem henni var nýverið afhent. Stefán Geir Þórisson, lögmaður Hermanns, kemst að þeirri niðurstöðu uppsögn Hermanns og ráðning nýs forstjóra hafi verið ólögmæt. Þórdís segir að svo virðist sem að Hermann átti sig ekki á því hvernig samskipti eigi að vera á milli framkvæmdastjóra og stjórna fyrirtækja. Hermanni var vikið frá störfum 30. desember auk þess sem samningi sem Tal hafði skömmu áður gert við Símann var rift. Jóhann Óli Guðmundsson sem situr í stjórn Tals er afar ósáttur við vinnubrögð meirihlutans og hefur jafnframt sagt að ákvörðunin sé ólögmæt. ,,Menn geta verið ósáttir en það kom upp trúnaðarbrestur og þeir verða að virða ákvarðanir meirihlutans," segir Þórdís. Þórdís segir að Hermann og Jóhann Óli séu með yfirlýsingum sínum að eyðileggja fyrirtækið og grafa undan starfsemi þess. Ekki hefur verið farið fram á að stjórn Tals komi saman. Stjórnarfundir eru að jafnaði haldnir á þriggja mánaða fresti.
Tengdar fréttir Forstjóri Tals hafði umboð stjórnar Yfirlýsing frá Jóhanni Óla Guðmundssyni, stjórnarmaður í Tali. 3. janúar 2009 16:59 Krefst forstjórastöðu Tals á ný Hermann Jónasson sem nýverið var sagt upp störfum sem forstjóri Tals fundaði með starfsfólki fyrirtækisins í morgun. 5. janúar 2009 11:43 Forstjóri Tals: Óþægilegt að láta öryggisvörð fylgja sér út Hermanni Jónassyni forstjóra Tals var sagt upp störfum 30. desember sl. Ástæðan er sögð sú að hann hafi gert samning við Símann án þess að hafa samráð við stjórn fyrirtækisins en annar samningur var í gildi við Vodafone. Hermann segist eingöngu hafa haft hagsmuni viðskiptavina Tals að leiðarljósi og vísar því á bug að stjórnin hafi ekki vitað af samningnum. Öryggisvörður og lögfræðingur stóðu yfir honum þegar hann yfirgaf vinnustað sinn. „Óþægileg tilfinning," segir Hermann sem íhugar að leita réttar síns. 3. janúar 2009 12:00 Forstjóri rekinn eftir samning við Símann „Tal hafði enga aðra leið,“ segir Hermann Jónasson, sem á þriðjudag var fyrirvaralaust vikið úr starfi forstjóra hjá Tali eftir að hafa gengið frá samningi um afnot Tals af farsímakerfi Símans. 3. janúar 2009 04:00 Samkeppniseftirlitið skoðar mál Tals Samkeppniseftirlitið hefur til skoðunar deilur vegna reksturs símafyrirtækisins Tals og hefur sent forsvarsmönnum Teymis, stærsta eigenda Tals og símafyritækisins Vofafone, fyrirspurn vegna þess. 2. janúar 2009 15:59 Telur brottvikningu forstjóra Tals ólögmæta Mikil átök hafa blossað upp á milli stærstu hluthafa símafélagsins Tals og var forstjóra fyrirtækisins, Hermanni Jónssyni, vikið tafarlaust frá störfum þann 26. desember síðastliðinn, auk þess sem samningi sem Tal hafði skömmu áður gert við Símann var rift. Jóhann Óli Guðmundsson, sem fer með 49 prósenta hlut í Tali á móti 51 prósents hlut Teymis er afar ósáttur við vinnubrögð meirihluta stjórnar og segir ákvörðunina ólögmæta. 1. janúar 2009 14:14 Mest lesið Lækka verð á þúsund vörum Neytendur Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Atvinnulíf Uppsagnir í Arion banka Viðskipti innlent Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Samstarf Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Atvinnulíf Payday fagnar stórum áfanga og horfir til gervigreindar Framúrskarandi fyrirtæki Loka Krambúðinni á Húsavík Viðskipti innlent Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Neytendur Tugir bíltegunda innkallaðir eftir 35 dauðsföll Neytendur Breskur fjárfestir leitar á náðir ríkisins vegna sæstrengs til Íslands Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Horfur á húsnæðismarkaði versna Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Bein útsending: Kynna niðurstöður septembertalningar HMS Ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu Verkfallið skaði orðspor Íslands Ágúst til ADVEL Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Kristinn Örn tekur við Teya á Íslandi Nauðasamningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna Sjá meira
Forstjóri Tals hafði umboð stjórnar Yfirlýsing frá Jóhanni Óla Guðmundssyni, stjórnarmaður í Tali. 3. janúar 2009 16:59
Krefst forstjórastöðu Tals á ný Hermann Jónasson sem nýverið var sagt upp störfum sem forstjóri Tals fundaði með starfsfólki fyrirtækisins í morgun. 5. janúar 2009 11:43
Forstjóri Tals: Óþægilegt að láta öryggisvörð fylgja sér út Hermanni Jónassyni forstjóra Tals var sagt upp störfum 30. desember sl. Ástæðan er sögð sú að hann hafi gert samning við Símann án þess að hafa samráð við stjórn fyrirtækisins en annar samningur var í gildi við Vodafone. Hermann segist eingöngu hafa haft hagsmuni viðskiptavina Tals að leiðarljósi og vísar því á bug að stjórnin hafi ekki vitað af samningnum. Öryggisvörður og lögfræðingur stóðu yfir honum þegar hann yfirgaf vinnustað sinn. „Óþægileg tilfinning," segir Hermann sem íhugar að leita réttar síns. 3. janúar 2009 12:00
Forstjóri rekinn eftir samning við Símann „Tal hafði enga aðra leið,“ segir Hermann Jónasson, sem á þriðjudag var fyrirvaralaust vikið úr starfi forstjóra hjá Tali eftir að hafa gengið frá samningi um afnot Tals af farsímakerfi Símans. 3. janúar 2009 04:00
Samkeppniseftirlitið skoðar mál Tals Samkeppniseftirlitið hefur til skoðunar deilur vegna reksturs símafyrirtækisins Tals og hefur sent forsvarsmönnum Teymis, stærsta eigenda Tals og símafyritækisins Vofafone, fyrirspurn vegna þess. 2. janúar 2009 15:59
Telur brottvikningu forstjóra Tals ólögmæta Mikil átök hafa blossað upp á milli stærstu hluthafa símafélagsins Tals og var forstjóra fyrirtækisins, Hermanni Jónssyni, vikið tafarlaust frá störfum þann 26. desember síðastliðinn, auk þess sem samningi sem Tal hafði skömmu áður gert við Símann var rift. Jóhann Óli Guðmundsson, sem fer með 49 prósenta hlut í Tali á móti 51 prósents hlut Teymis er afar ósáttur við vinnubrögð meirihluta stjórnar og segir ákvörðunina ólögmæta. 1. janúar 2009 14:14
Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Atvinnulíf
Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Atvinnulíf