Fór inn á sjúkraskrár sjúklinga 12. september 2009 06:00 Matthías Halldórsson Embætti landlæknis rannsakaði málið.
Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Blönduóss hefur orðið uppvís að því að fara inn á sjúkraskrár fólks sem leitað hefur til lækna stofnunarinnar. Þetta staðfestir Matthías Halldórsson landlæknir. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins hafði forstjórinn aðgang að sjúkraskrám heilbrigðisstofnunarinnar af því að hann sá um tölvumál hennar og stofnaði meðal annars aðgang fyrir nýja starfsmenn og setti inn lykilorð þeirra. „Forstjórar eru ekki heilbrigðismenntaðir og eiga ekki að hafa aðgang inn í sjúkraskrárnar,“ útskýrir landlæknir. Persónuvernd barst kvörtun um óheftan aðgang forstjórans. Hún vísaði málinu til landlæknisembættisins þar sem fram fór rannsókn á því. Hún leiddi í ljós að forstjórinn hafði farið inn á sjúkraskrár í allnokkrum tilvikum. Landlæknisembættið hefur komist að niðurstöðu í málinu, sem verður ekki greint frá að sinni. Verður hún send heilbrigðisráðuneytinu eftir helgi, því forstjórar heilbrigðisstofnana heyra undir ráðuneytið. Fréttablaðið leitaði skýringa á þessu atferli forstjórans hjá honum síðdegis í gær. Hann sagðist ekki vilja tjá sig um málið því hann væri kominn í helgarfrí. Brot gegn lögum um sjúkraskrár varða sektum eða fangelsi allt að þremur árum.- jss
Mest lesið Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Tveir hinna látnu lögreglumenn Erlent Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Innlent Fleiri fréttir Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Sjá meira