Fundur VG: Félagshyggjustjórnin megi ekki stranda á Icesave Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 11. ágúst 2009 23:52 Gestur Svavarsson, fundarstjóri félagsfundar VG í Kraganum. Mynd/Karl
Það var þétt setinn bekkurinn á félagsfundi Vinstri grænna í Kraganum í kvöld, en aðstandendur fundarins telja að yfir hundrað manns hafi setið fundinn. Meðal gesta var stór hluti þingflokks Vinstri grænna og jafnvel flokksmeðlimir úr öðrum kjördæmum. Mál málanna á fundinum var, líkt og nærri mátti geta, frumvarp ríkisstjórnarinnar um Icesave, en meðal þeirra sem sátu fyrir svörum á fundinum voru þingmennirnir Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Ögmundur Jónasson, sem talað hefur fyrir fyrirvörum við samninginn. Að sögn Gests Svavarssonar, fundarstjóra, mátti sjá allt Icesave-skoðanalitrófið meðal gesta fundarins og var málið rætt fram og til baka. Sumir töldu samningstregðu Ögmundar og Guðfríðar óábyrga, meðan aðrir lýstu stuðningi við fyrirvara við samninginn. Gestur segir að þó ekki sé hægt að tala um niðurstöðu af fundinum, hafi þingmenn flokksins örugglega fundið fyrir þrýstingi um að málið yrði klárað á farsælan hátt. „Allir voru sammála um það að stefna bæri að því að hafa hér félagshyggjustjórn næstu árin og hún mætti ekki stranda á þessu," segir Gestur. Á fundinum voru aðildarviðræður við Evrópusambandið einnig ræddar, svo og samfélagsmál og frysting eigna auðmanna.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Fleiri fréttir Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sjá meira