Opið í Skaftafelli í fyrsta sinn að vetrarlagi 11. desember 2009 19:16
Upplýsingamiðstöðin í Skaftafelli er nú í fyrsta sinn opin yfir vetrarmánuði enda segir þjóðgarðsvörður íslenska náttúru einnig draga ferðamenn að um háveturinn. Heitt vatn, sem nýlega fannst á staðnum, býður upp á nýja möguleika. Það er reyndar ekkert sérstaklega vetrarlegt í Öræfum þessa dagana enda veðrið að undanförnu líkara því sem menn eiga að venjast á öðrum árstímum, - þannig fór hitinn í Skaftafelli í tólf stig í dag. Í gegnum tíðina hefur þjónustumiðstöðin aðeins verið opin yfir sumarmánuði, og jafnan skellt í lás í septemberlok, en nú er hún í fyrsta sinn höfð opin yfir veturinn, þó ekki um helgar. Og ferðamennirnir eru að slæðast inn, jafnvel nú í desember, að sögn Regínu Hreinsdóttur þjóðgarðsvarðar. Þannig kom talsverður fjöldi ferðamanna í Skaftafell milli jóla og nýárs í fyrra. Þetta eru nær eingöngu útlendingar, langflestir á eigin vegum á bílaleigubílum, en einnig eru dæmir um hópa, og þeim finnst Skaftafell einnig heillandi að vetri. Þeir koma til að skoða jöklana og ganga upp að Svartafossi. Og nú sjá menn fram á ný tækifæri eftir að borun eftir heitu vatni skilaði þeim árangri að upp streyma sjö til átta sekúndulítrar af fimmtíu stiga heitu vatni. Áður var gas notað til að hita upp ferðamannasturtur og rafmagn til að kynda húsin en nú verður lögð hitaveita. Hvort þetta verði til þess að heitir pottar verði settir upp á tjaldstæðinu segir Regína að tíminn verði að leiða það í ljós.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Fleiri fréttir Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Sjá meira