Innlent

Hvalfjarðargöngin opnuð eftir slys

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Þriggja bíla árekstur varð í Hvalfjarðargöngunum í dag, en þau hafa nú verið opnuð. Mynd/Pjetur
Þriggja bíla árekstur varð í Hvalfjarðargöngunum í dag, en þau hafa nú verið opnuð. Mynd/Pjetur

Verið er að opna Hvalfjarðargöngin, en þeim var lokað eftir að þriggja bíla árekstur varð þar á fimmta tímanum.

Samkvæmt upplýsingum frá sjúkraliðinu voru ökumenn einir í öllum þremur bílunum. Þeir voru fluttir brott í sjúkrabílum, tveir þeirra á sjúkrahús á Akranesi en einn til Reykjavíkur. Meiðsl þeirra eru minniháttar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×