Kaupa Katarar hlut í Kaupþingi? 31. janúar 2008 13:40
Forsvarsmenn Kaupþings eiga í viðræðum við fjárfesta í ríkjum við Persaflóa og á öðrum svæðum um hugsanleg kaup á hlut í bankanum. Þetta staðfesti Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings, í hádegisviðtalinu á Stöð 2 í dag. Hreiðar Már var spurður út í orðróm þess efnis að fjárfestar frá Katar hefðu áhuga á að verða stór hluthafi í Kaupþingi. Hann svaraði því til að fjárfestar frá því svæði hefðu verið að fjárfesta mikið í bönkum í Evrópu og Ameríku „og það væri örugglega mjög áhugavert fyrir okkur að fá inn fjárfesta frá þessu svæði inn í bankann." Þegar Hreiðar var spurður út í fréttir af fundum stjórnarformanns Kaupþings, Sigurðar Einarssonar, með fjárfestum í Katar staðfesti Hreiðar að einhverjar viðræður ættu sér stað en tíminn yrði að leiða í ljós hvort viðræðurnar skiluðu einhverju. „Það væri ekki spurning að það myndi styrkja bankann okkar að fá inn nýja og öfluga fjárfesta." Aðspurður sagði Hreiðar að um væri að ræða nokkra sjóði á vegum viðkomandi ríkja. Slíkir sjóðir hefðu komið inn í erlenda banka að undanförnu eins og Citigroup og Credit Suisse. Uppspretta auðs væri um þessar stundir í Miðausturlöndum og í Kína. Hreiðar Már ræddi einnig afkomu bankans á liðnu ári en hann skilaði 70 milljarða króna hagnaði. Hann sagðist sáttur við niðurstöðuna en benti á að árið hefði verið kaflaskipt. „Fyrri helmingurinn var mjög góður en síðari helmingurinn var erfiðari enda breyttust markaðsaðstæður mjög til hins verra," segir Hreiðar Már. Aðspurður hvort möguleiki sé á að íslensku bankarnir fari úr landi segir Hreiðar Már það vel geta komið til greina. Kaupþing sé hins vegar ekki að huga að því.
Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira