Stærstu bílaviðskipti Íslandssögunnar 31. janúar 2008 13:33 Ragnar Sigþórsson, Þorsteinn Þorgeirsson, Björn Ragnarsson, Heiðar Sveinsson og Guðlaugur Andri Sigfússon kátir við undirritun samningsins.
Bílaleigan ALP sem er umboðsaðili AVIS og BUDGET á Íslandi hefur gengið frá samningum við bílaumboðin B&L og Ingvar Helgason (IH) um kaup á 900 nýjum bifreiðum að verðmæti tæplega 2 milljarða króna. Talið er að um sé að ræða stærstu bílakaup sem einn aðili hefur ráðist í á Íslandi. Samtals 900 nýir bílarALP kaupir 440 nýja bíla frá B&L og eru þeir af gerðunum Hyundai, Renault og Land Rover. Fyrr í mánuðinum var gengið frá samningi við IH um kaup á 460 nýjum bílum af gerðunum Nissan, Subaru og Opel. ALP fær fyrstu bílana afhenta í apríl en búið verður að afhenda alla 900 bílana um miðjan júnímánuð í tæka tíð fyrir hápunkt ferðamannatímabilsins. „Gáfum þeim góðan afslátt"Það voru þeir Heiðar J. Sveinsson, forstöðumaður sölusviðs B&L og Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóri ALP, sem handsöluðu kaupin sem að sögn Heiðars eru þau stærstu í sögu B&L. „Þetta er bæði mesta verðmæti eins einstaks sölusamnings og við höfum heldur aldrei selt einum aðila jafn marga bíla í einu. En þeir njóta þess líka í verðinu - við gáfum þeim alveg þokkalegan magnafslátt", segir Heiðar kankvís. Bjartsýnn á ferðamannasumariðAð sögn Björns líta menn björtum augum til þessa samstarfs við B&L enda er fyrirtækið með breitt vöruúrval og þekkt fyrir öflugt þjónustuverkstæði. „Fyrir bílaleigu eins og okkar þá skiptir mestu að missa bílana sem minnst úr rekstri. Lág bilanatíðni og hátt þjónustustig eru því lykilatriði. Jafnframt eru merkin mjög sterk sem B&L eru með og hafa reynst vel og við þurfum ekki að bera neinn kvíðboga gagnvart því að bjóða viðskiptavinum okkar þessa bíla til leigu, síður en svo," segir Björn sem er bjartsýnn á gott ferðamannasumar. „Ekki síst ef að gengi íslensku krónunar helst stöðugt."
Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira