Til athugunar að lækka einkunn íslensku bankanna Óli Kristján Ármannsson og Jón Skaftason skrifar 31. janúar 2008 06:00 Kaupþing Í Kauphallartilkynningum gærdagsins gerði Moody‘s grein fyrir endurskoðun á lánshæfi bankanna.
Lánshæfiseinkunnir stóru viðskiptabankanna eru í endurskoðun hjá matsfyrirtækinu Moody‘s. Tilkynnt var um þetta til Kauphallar eftir að ljóst var að yfirtaka Kaupþings á hollenska bankanum NIBC væri úr sögunni. Kaupþing er nú með lánshæfiseinkunnina Aa3 en einkunnina C þegar kemur að fjárhagslegum styrkleika og horfur neikvæðar. Einkunnir Kaupþings komu fyrst til endurskoðunar þegar tilkynnt var um kaupin á NIBC síðasta sumar. Fram kemur í yfirlýsingu frá Moody‘s að ákvörðun Kaupþings um að hætta við yfirtökuna sé litin jákvæðum augum og hafi sérlega góð áhrif á lausafjárstöðu Kaupþings. Þrátt fyrir þetta sé ekki ástæða til að láta af endurskoðun á einkunnum Kaupþings. Þá tilkynnti Moody‘s í gær að Aa3/C lánshæfiseinkunnir bæði Glitnis og Landsbankans væru til athugunar til mögulegrar lækkunar. Samhliða var skammtímaeinkunn bankanna, sem er P-1, staðfest. Í Vegvísi Landsbankans er orð haft á hringlandahætti sem verið hafi í einkunnagjöf Moody‘s, en verði af lækkun lánshæfismats bankanna verður það í þriðja sinn sem fyrirtækið breytir einkunn íslensku bankanna á aðeins einu ári. Í febrúar í fyrra var langtímalánshæfiseinkunn Kaupþings, Landsbankans og Glitnis hækkuð í Aaa (hæstu einkunn), í kjölfar breyttrar aðferðafræði. Breytingin sætti harðri gagnrýni og var hækkun bankanna dregin til baka að hluta í apríl.
Mest lesið Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Viðskipti erlent Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Wolt sendlar lögðu niður störf Viðskipti innlent Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Viðskipti innlent 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Samstarf Fleiri valkostir í Bónus með Salling Samstarf Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Neytendur Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum Samstarf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Sjá meira