Viðskipti innlent

Málsókn gegn Bretum á hendi kröfuhafa Kaupþings

Kröfuhafar í þrotabú Kaupþings munu verða þeir sem endanlega ákveða hvort mál verður höfðað gegn breskum stjórnvöldum. Þetta segir skilanefnd Kaupþings.

Í tilkynningu frá nefndinni segir að í kjölfar inngripa breskra yfirvalda með skipan skiptastjóra í Kaupthing Singer & Friedlander, dótturfélag Kaupþings banka hf., þann 9. október síðastliðinn óskaði skilanefnd Kaupþings banka eftir því við bresku lögmannsstofuna Grundberg, Mocatta, Rakison LLP að gerð yrði frumathugun á því hverjir væru möguleikar bankans á að krefjast skaðabóta á hendur breska ríkinu.

Unnið er að því að útvega þau gögn sem óskað hefur verið eftir til að ljúka þessari athugun. Ljóst er að málaferli af þessum toga eru mjög kostnaðarsöm og í þeim er óhjákvæmilega fólgin óvissa um niðurstöðu. Að óbreyttu eru það kröfuhafar bankans sem þurfa að bera þann kostnað og taka þá áhættu sem af slíkum málaferlum leiðir. Þeir hljóta því að eiga síðasta orðið um það hvort af málssókn verður.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×