Flestir vilja eiga FL bréf áfram 2. maí 2008 07:17 Jón Ásgeir Jóhannesson.
Stjórn FL Group hefur samþykkt að boða til hluthafafundar þann 9. maí næstkomandi og leggja fyrir hluthafa félagsins tillögu um skráningu félagsins úr kauphöll OMX Nordic Exchange á Íslandi. Að fengnu samþykki hluthafafundar mun FL Group gera hluthöfum tilboð um að kaupa hluti þeirra í FL Group og greiða fyrir þá með hlutum í Glitni. Um 83% hluthafa félagins hafa þegar afsalað sér rétti til tilboðsins og verða því áfram hluthafar í FL Group, að því er segir í tilkynningu. Þar segir einnig að stjórn FL Group telji að skráning félagsins úr kauphöll OMX þjóni hagsmunum félagsins og hluthöfum þess best og veiti stjórnendum félagsins færi á að leggja frekari áherslu á langtímamarkmið. „Síðustu mánuði hefur farið fram gagnger endurskoðun á fjárfestingastefnu og rekstri FL Group en félagið leggur nú áherslu á stöðugar langtímafjárfestingar og fjárfestingar í óskráðum félögum. Afskráning mun veita framkvæmda¬stjórn félagsins sveigjanleika til að horfa til lengri tíma í uppbyggingu félagsins og minnka kostnað og umsvif sem fylgja því að vera skráð félag. " Tveir þriðju hlutahafa þurfa að samþykkja til þess að afskráningarferlið geti hafist. Að fengnu samþykki hluthafafundar þann 9. maí mun hluthöfum standa til boða að halda hlutum sínum í FL Group sem verður óskráð félag eða selja hluti sína í FL Group og fá greitt fyrir með hlutum í Glitni banka.„Kaupverð hluta í FL Group í tilboði til hluthafa verður 6,68 á hlut sem var meðalgengi FL Group í aprílmánuði 2008 og gengi á hlutum í Glitni verður 17,05 á hlut sem var lokagengi Glitnis þann 30. apríl 2008. Skiptihlutfallið í tilboði til hluthafa verður því 0,3918 hlutir í Glitni banka fyrir hvern hlut í FL Group," segir einnig í tilkynningunni.Þar kemur einnig fram að FL Group hafi gert samkomulag við Jötunn Holding ehf. um rétt FL Group til kaupa á hlutum Jötuns í Glitni sem nota skal í viðskiptunum. Þessi viðskipti hafi því engin áhrif á 31,97% eignarhlut FL Group í Glitni eða stöðu Glitnis sem einni af kjarnafjárfestingum FL Group.Hluthöfum, sem skráðir eru í hluthafaskrá félagsins í lok dags 8. maí, gefst færi á að skipta á bréfum sín í FL Group fyrir bréf í Glitni á tímabilinu frá 9. maí til kl. 16.00 þann 21. maí 2008. Stefnt er að því að ljúka afskráningarferlinu sem fyrst í kjölfar þess að tilboðið rennur út. Glitnir banki hefur umsjón með viðskiptunum og eftir 9. maí geta hluthafar fengið frekari upplýsingar og aðstoð í síma 440 3725 og á vefsíðu bankans.Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður FL Group segir að afskráning FL Group muni veita „stjórnendum félagsins tækifæri til að leggja meiri áherslu á langtímamarkmið og minnkar einnig áhrif vegna skammtímamarkmiða sem tengjast hlutabréfamarkaði. Sú staðreynd að um 83% hluthafa félagsins hafa þegar ákveðið að halda hlut sínum í FL Group að afskráningu lokinni sýnir vel þá trú sem þessir aðilar hafa á FL Group, stefnu stjórnar og framkvæmdastjórnar. Þeir hluthafar sem kjósa fremur að eiga hlut í skráðu félagi hafa möguleika á að fjárfesta í Glitni, einni af kjarnafjárfestingum FL Group, sem við getum óhikað mælt með."„Síðastliðna mánuði hefur verið unnið markvisst að endurskipulagningu fjárfestingasafns og reksturs FL Group, með það markmið að styrkja fjárhagsstöðu félagsins og veita því stöðugleika," segir forstjóri félagsins, Jón Sigurðsson. „Skráning félagsins af markaði er rökrétt skref í áframhaldandi endurskipulagningu félagsins. Við teljum að sem óskráð félag muni FL Group fá aukið svigrúm og fleiri tækifæri til að efla rekstur félagsins og kjarnafjárfestingar félagsins á banka-, trygginga- og fasteignamarkaði ásamt því að styðja við fjárfestingaverkefni í óskráðum félögum."
Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Sjá meira