Samið við hjartalækna til tæpra tveggja ára 2. maí 2008 22:32
Samninganefnd heibrigðisráðherra og hjartalæknar hafa gert samning um þjónustu þeirra síðarnefndu sem sögðu sig af samningi fyrir liðlega tveimur árum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu. Með samkomulaginu sem nú hefur verið undirritað er ekki lengur gerð krafa um tilvísun frá heilsugæslu- eða heimilislækni. Sjúklingar þurfa heldur ekki lengur að leggja út fyrir öllum kostnaði vegna þjónustu hjartalækna og sækja síðan um endurgreiðslu á hluta hans til Tryggingastofnunar ríkisins. Með samkomulaginu þurfa sjúklingar einungis að greiða hjartalækni hlutdeild sína í hinum umsamda kostnaði við þjónustuna. Samningurinn gildir um alla hjartalækna sem voru í starfi í apríl 2008 og tekur til þjónustu sem veitt er utan sjúkrahúsa. Hafa læknar frest til 1. júní til að staðfesta aðild sína að samningum en samningurinn gildir frá 5. maí 2008 til og með 31. mars 2010. Samningurinn milli samninganefndar heilbrigðisráðherra og hjartalækna er á sömu nótum og samningur sem undirritaður var fyrir skömmu og tekur til þjónustu annarra sérfræðilækna. Meginmarkmið með samningum við hjartalæknana er að tryggja bætta þjónustu við hjartasjúklinga og gera leið sjúklinga að þjónustu þeirra greiðari og sambærilega við það sem gildir um aðra sérfræðiþjónustu, eins og segir í tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins. Kostnaður við samninginn er sagður um 306 milljónir króna á ársgrundvelli og þar af hlutur Tryggingastofnunar tæpar 200 milljónir króna.
Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira