Viðskipti innlent

Um 7.000 farþegar með Flugfélagi Íslands

Töluvert fleiri farþegar eiga bókað flug um hátíðirnar en á síðasta ári, fjölgunin nemur 8% og dreifist nokkuð jafnt á áfangastaði Flugfélags Íslands en um 7.000 farþegar munu fljúga með félaginu um jól og nýár.

Hlutfallslega er mest aukning í flugi til Vestmannaeyja en þangað eiga um tvöfalt fleiri farþegar bókað en á síðasta ári, einnig er töluverð aukning í flugi til Egilsstaða. Miðað er við tímabilið 23. desember til 04. janúar.

Í dag, þorláksmessu eru hátt í 900 farþegar bókaðir í flug sem er töluverð aukning frá fyrra ári en þar getur haft áhrif á hvaða vikudegi þorláksmessa ber upp. Flug hefur gengið vel til allra staða nema Ísafjarðar en flug þangað er í athugun.

Í tilkynningu um málið segir að það megi leyfa sér að túlka þessa fjölgun farþega að enn frekar en áður leggi landsmenn áherslu á að njóta hátíðanna í faðmi sinna nánustu fjölskyldu og vina.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×