Greiningardeild Kaupþings býst við 12,6 prósenta verðbólgu í maí 23. maí 2008 17:19 Ásgeir Jónsson er forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings.
Greiningardeild Kaupþings hefur endurskoðað verðbólguspá sína fyrir maímánuð og gerir nú ráð fyrir 1,6 prósenta verðbólgu í maí þannig að tólf mánaða verðbólga verði 12,6 prósent. Þetta kemur fram í hálffimmfréttum Kaupþings. Greiningardeildin bendir á að húsnæðisverð í apríl hafi lækkað um 1,7 prósent sem sé talsvert meiri lækkun en greiningardeildin hafði gert ráð fyrir. „Þá hefur krónan verið að styrkjast sem í kjölfarið leiddi til þess að hluti af verðhækkun eldsneytis síðustu vikurnar gekk til baka.“ Greiningardeild Kaupþings segir enn fremur að viðsnúningur krónunnar síðustu daga virðist ætla að halda aftur af verðlagshækkunum en gengi krónunnar hafi nú styrkst um átta prósent á síðustu sex dögum. „Þá hefur húsnæðismarkaðurinn sýnt veruleg kólnunarmerki og því allt útlit fyrir að húsnæðisliðurinn nái loksins að draga úr verðbólguhraðanum í stað þess að auka hann líkt og verið hefur síðustu misserin. Að mati Greiningardeildar er því líklegt að mesti verðbólgukúfurinn hafi gengið yfir og að nú þegar líður á seinni hluta ársins muni draga hratt úr hraða verðbólgunnar. Megin óvissuþættir um þróun verðlags á næstu mánuðum snúa að þróun gengis og hráefnaverðs úti í heimi," segir í hálffimmfréttum.
Mest lesið Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Viðskipti innlent Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ Sjá meira