Úkraínskur banki í eigu Íslendinga semur við þróunarbanka Evrópu 23. maí 2008 15:33 Frá undirritun samnings Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu og Bank Lviv.
Bank Lviv, úkraínskur banki sem meðal annars er í eigu íslenska félagsins MP fjárfestingarbanka, hefur undirritað samstarfssamning við Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu. Í tilkynningu frá MP fjárfestingarbanka segir að samstarfið felist í þjálfun starfsfólks Bank Lviv og endurfjármögnun útlána til smárra og meðalstórra fyrirtækja og svonefndra örlána. Þróunarbankinn er stærsti erlendi fjárfestirinn í Úkraínu. Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra var viðstaddur undirritunina sem fór fram í útibúi Bank Lviv í Kænugarði og ávarpaði viðstadda. MP Fjárfestingarbanki hefur á undanförnum árum haslað sér völl á úkraínskum fjármálamarkaði. Segir fjárfestingarbankinn að rekstur Bank Lviv hafi gengið mjög vel og eftir að íslenskir fjárfestar tóku við stjórn bankans í ársbyrjun 2006 hefur hann stækkað mikið, en útibúin eru orðin 21 talsins, staðsett víðsvegar um landið. Margeir Pétursson, stjórnarformaður MP Fjárfestingarbanka, segir þróun Bank Lviv hafa gengið mjög vel og bankinn hafi vaxið umfram áætlanir. „Bank Lviv hefur notið góðs af miklum framförum og hagvexti í Úkraínu og ég býst við því að hann fái aukið samkeppnisforskot nú þegar er þrengra er um vik á úkraínskum fjármagnsmarkaði en áður," segir Margeir um framtíðarhorfur í rekstri bankans.
Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Sjá meira