Fullvalda skáldskapur 1. desember 2008 06:00 Í dag eru 90 ár liðin frá því að Ísland varð fullvalda ríki. Um skeið virtust merkisafmæli í sögu þjóðarinnar hafa misst erindi sitt við venjulegt fólk. Þegar fortíðin knúði dyra á sparifötunum fannst almenningi hún lítill aufúsugestur. Nú ber annað við. Á þeim örlagatímum sem við nú lifum er fortíðin skyndilega nákomin og kær, samanburður við hana eðlilegur. Því er 1. desember 2008 táknrænn dagur, ekki aðeins fyrir þjóðfrelsi Íslendinga, heldur einnig fyrir enduruppgötvun Íslendinga á menningu sinni, hefðum og tungumáli sem virðast einu haldreipin. Íslendingar reyna um þessar mundir að átta sig á tilverunni, hverjir þeir eru og til hvers lífi þeirra er lifað. Hvert um sig erum við að semja nýja lífssögu. Þessi saga er sett saman úr orðum móðurmálsins sem við öll deilum. Hún er sett saman úr hugmyndum um þroska, hamingju og gott líf sem við óskum öll eftir, sama með hvaða hætti við ætlum okkur að markmiðunum. Bókmenntirnar gengdu því hlutverki um aldir að vera uppspretta sjálfsskilnings og samhengis. Sögur af siðferðilegum álitamálum og deilum sem óþekkt miðaldafólk sagði og skráði hafa fram á þennan dag verið fólki fyrirmynd í breytni og innblástur við að skilja samhengi hlutanna. Rökleg sundurliðun hræringa mannsálarinnar sem lúterskir eldklerkar og sálmaskáld settu niður í postillum og sálmakverum bjó til fyrirbæri eins og samvisku og iðrun, sem nú er sárlega kallað eftir. Stórskáld okkar daga hafa bundið nútímaheiminn í ljóðlínur og sögur sem eru líkt og sverðshögg á flækjuhnúta lífsins. Í meðförum þeirra öðlast tungumálið þann skýrleika sem við öll þurfum til að greina hismi frá kjarna. Hafi okkur verið borið orðamoð er þörf á næringarríkum hendingum. Sjálfstæðisbarátta okkar og bókmenntir hafa ævinlega verið samslungin, til þeirra og tungumálsins voru rökin sótt forðum fyrir sjálfstæðri tilvist okkar. Það er trú okkar að einnig nú hafi íslenskar bókmenntir hlutverki að gegna. En þá skiptir hlutur almennings líka miklu, því það er forsenda íslenskrar bókaútgáfu að þátttaka lesenda - iðkendanna - sé ævinlega stór. Fámennið gerir að verkum að hér geta aldrei myndast skil á milli alþýðumenningar og hámenningar, íslensk menning er alþýðuhámenning eða ekki. Það er eitt af undrum veraldar hvernig íslenskar fornbókmenntir gátu varðveist í landinu öldum saman, þrátt fyrir örbirgð og einangrun, löngu fyrir tilkomu prentverks. Það afrek verður ekki skilið án þess að hlutur almennings sé hafður í huga. Og það hvernig þessi þjóð síðan reis til bjargálna og allsnægta með undraskjótum hætti á sér fyrst og síðast eina skýringu: hið tiltölulega almenna læsi og bókmenntaþjálfun þjóðarinnar sem í fyllingu tímans opnaði henni leiðir inn í alla heima. Við þurfum að treysta þennan grunn. Rithöfundar og útgefendur hafa í félagi við aðra á vettvangi íslenskrar bókmenningar mótað tillögur um hvernig hægt sé með tiltölulega einföldum hætti að stórefla lestrarmenningu Íslendinga. Um allt land vinna áhugasamir kennarar, bóksasafnsfræðingar og foreldrar þrekvirki í að búa börnin okkar undir að takast á við heim þar sem lestur og skilningur á samhengi er lykilhæfni. Vandamálið er að lítil samhæfing er á milli þeirra sem í baráttunni standa. Menn finna upp lestrarhjólið aftur og aftur með ærinni fyrirhöfn og alltof fáir vita af vopnabræðrum sínum. Þetta ætti að vera auðvelt að leysa ef vilji er fyrir hendi. Jafnframt verður að vinna þeim skilningi brautargengi að lestrarhvatning er eitt af mikilvægustu verkefnum samfélagsins. Rétt eins og varið er miklum fjármunum til að hvetja almenning til að haga sér skynsamlega í umferðinni, láta af reykingum og hreyfa sig oftar ætti almenningur einnig að fá að vita að læsi er eitt helsta hagsmunamál þjóðarinnar. Góðir landsmenn, nú eru örlagatímar, sláum skjaldborg um íslenskar bókmenntir og íslenska menningu og sækjum fram! Kristján B. Jónasson er formaður Félags íslenskra bókaútgefenda. Pétur Gunnarsson er formaður Rithöfundasambands Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia skrifar Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Gengið til friðar Ingibjörg Haraldsdóttir,Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Skoðun Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson skrifar Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Flugvöllurinn í Reykjavík - fyrir landið allt Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Gamla fólkið okkar býr við óöryggi – kerfið okkar er að bregðast Valný Óttarsdóttir skrifar Skoðun Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fiktið byrjar ekki sem sjúkdómur Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Jólagjöf ríkisstjórnarinnar Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Einfaldlega íslenskt, líka um jólin Hafliði Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Vönduð lagasetning á undanhaldi Diljá Matthíasardóttir skrifar Sjá meira
Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir Skoðun
Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar
Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar
Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar
Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar
Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir Skoðun